Fótbolti

Rodrygo hetja Real Madrid gegn D-deildarliði Cacereno

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Rodrygo reyndist hetja Real Madrid í kvöld.
Rodrygo reyndist hetja Real Madrid í kvöld. Angel Martinez/Getty Images

Spænska stórveldið Real Madrid vann nauman 0-1 sigur er liðið heimsótti D-deildarlið Cacereno í spænsku bikarkeppninni í fótbolta í kvöld, Copa del Rey.

Madrídingar mættu ekki með sitt sterkasta lið til leiks, enda á leikur gegn liði sem leikur í fjórðu efstu deild að vera formsatriði fyrir félag eins og Real Madrid.

Gestirnir áttu þó í stökustu vandræðum með að brjóta ísinn og það tókst ekki fyrr en að um tuttugu mínútur voru til leiksloka þegar Rodrygo kom boltanum í netið eftir stoðsendingu frá Daniel Ceballos og niðurstaðan því 0-1 sigur Real Madrid.

Madrídingar eru því á leið í 16-liða úrslit Copa del Rey á kostnað Cacereno sem situr eftir með sárt ennið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×