Dúndur byrjun dugði meisturum til sigurs

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sandro Tonali skoraði og lagði upp í sigri AC Milan á Salernitana.
Sandro Tonali skoraði og lagði upp í sigri AC Milan á Salernitana. getty/Claudio Villa

AC Milan sigraði Salernitana, 1-2, í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Sigurinn hefði hæglega getað orðið stærri en Guillermo Ochoa átti stórleik í marki heimamanna.

Þetta var annar sigur Milan í röð og sá þriðji í síðustu fjórum leikjum. Þeir rauðu og svörtu eru í 2. sæti deildarinnar með 36 stig, fimm stigum á eftir toppliði Napoli sem mætir Inter í kvöld.

Milan byrjaði leikinn af miklum krafti og var komið í 0-2 eftir stundarfjórðung. Á 10. mínútu lagði Sandro Tonali upp mark fyrir Rafael Leao og fimm mínútum síðar skoraði hann sjálfur.

Brahim Díaz skoraði á 58. mínútu en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Salernitana átti því enn möguleika og sjö mínútum fyrir leikslok minnkaði Federico Bonazzoli muninn í 1-2 þegar hann skoraði úr erfiðu færi. Heimamönnum tókst hins vegar ekki að jafna og gestirnir fara heim til Mílanó með stigin þrjú.

Á sama tíma vann Sampdoria 1-2 sigur á Sassuolo. Sigurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir Genóaliðið í fallbaráttunni. Sampdoria er samt enn fjórum stigum frá öruggu sæti. Sassuolo, sem hefur tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum, er í 15. sætinu með sextán stig.

Manolo Gabbiadini og Tommaso Augello komu Sampdoria í 0-2 en ítalski landsliðsmaðurinn Domenico Berardi minnkaði muninn fyrir Sassuolo.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira