Handbolti

Úr­­slitin standa og Grótta heldur enn í veika von um úr­­slita­­keppnis­­sæti

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Handknattleiksdeild Hauka kærði framkvæmd leiks liðsins gegn Gróttu, en fékk ekki sínu framgengt.
Handknattleiksdeild Hauka kærði framkvæmd leiks liðsins gegn Gróttu, en fékk ekki sínu framgengt. Vísir/Diego

HSÍ hafnaði í gær kröfum handknattleiksdeildar Hauka sem kærði framkvæmd leiks liðsins gegn Gróttu í Olís-deild karla í handbolta þann 23. mars síðastliðinn. Eins marks sigur Gróttu, 27-28, stendur því og liðið heldur enn í veika von um sæti í úrslitakeppninni.

Lokasekúndurnar í leik Hauka og Gróttu voru æsispennandi þar sem Haukar virtust hafa komist yfir þegar örfáar sekúndur voru til leiksloka. Gróttumenn brunuðu fram og náðu að skora það sem þeir héldu að væri jöfnunarmark leiksins.

Í ljós kom hins vegar að annar dómari leiksins hafði dæmt línu á Stefán Rafn Sigurmannsson þegar hann kom knettinum í netið í sókninni á undan á meðan hinn dómarinn dæmdi mark. Eftir töluverða reikistefnu var niðurstaðan að mark Hauka var dæmt af en mark Gróttu látið standa.

Í kjölfarið tók handknattleiksdeild Hauka þá ákvörðun að kæra framkvæmd leiksins. Krafa Hauka var í tvíþætt þar sem félagið krafðist þess fyrst og fremst að mark Stefáns yrði látið standa og að leiknum lyki því með jafntefli, 28-28.

Til vara kröfðust Haukar þess að úrslit leiksins yrðu dæmd ógild og að leikurinn yrði því leikinn á ný. HSÍ hefur hins vegar hafnað báðum þessum kröfum og eins marks sigur Gróttu, 28-27, stendur.

Úrslitin þýða að Grótta er enn með 15 stig í níunda sæti þegar tvær umferðir eru eftir af deildarkeppni Olís-deildar karla, fjórum stigum á eftir Haukum sem sitja í áttunda og seinasta úrslitakeppnissætinu. Grótta á því enn möguleika á sæti í úrslitakeppninni.

Til að liðinu takist að komast þangað þarf Grótta að vinna báða sína leiki sem eftir eru og vonast til þess að Haukar tapi báðum leikjum sínum. Grótta leikur gegn botnliði Harðar í kvöld áður en liðið tekur á móti KA í lokaumferðinni, en Haukar mæta ÍBV í kvöld og Herði í lokaumferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×