Handbolti

„Þetta er það sem deildin okkar stendur fyrir“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Sigursteinn Arndal er þjálfari FH í Olís-deildinni og hefur fylgst vel með framgangi U-21 árs liðsins á heimsmeistaramótinu.
Sigursteinn Arndal er þjálfari FH í Olís-deildinni og hefur fylgst vel með framgangi U-21 árs liðsins á heimsmeistaramótinu. Vísir/Vilhelm

Íslenska landsliðið í handbolta skipað leikmönnum undir tuttugu og eins árs mætir Portúgal í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins á morgun. Þjálfari FH segir möguleika á sæti í undanúrslitum klárlega vera til staðar.

U-21 árs landslið Íslands er skipað leikmönnum úr Olís-deild karla, leikmönnum sem leika lykilhlutverk í sínum liðum. Þetta skiptir sköpum segir Sigursteinn Arndal, þjálfari FH í Olís-deildinni.

Sigursteinn hefur fylgst vel með framgöngu strákanna okkar á mótinu. Í liðinu leika meðal annars Einar Bragi Aðalsteinsson og Jóhannes Berg Andrason sem leika stór hlutverk í FH í efstu deild hér á landi.

„Fyrst og síðast bara frábær árangur að vera kominn í 8-liða úrslit. Það verður að viðurkennast að byrjunin var alveg smá stirðbusaleg. Það er oft flókið verkefni að fara í leiki á móti þjóðum sem þú átt að vinna og sama skapi fyrstu leiki í móti. Mér finnst liðið og þjálfararnir hafa tekist vel á við þetta og eru búnir að sýna góða leiki gegn Serbum og Egyptum.“

Sigursteinn segir Olís-deildina standa fyrir það að gefa ungum leikmönnum tækifæri snemma.

„Það er mikið af strákum sem eru búnir að vera í stórum hlutverkum í deildinni. Það er bara það sem deildin okkar stendur fyrir að gefa ungum mönnum tækifæri snemma og þeir eru klárlega að njóta góðs af því.“

Leikurinn á morgun gegn Portúgal verður erfiður en Portúgal fékk silfur á síðasta heimsmeistaramóti í þessum aldursflokki.

„Möguleikarnir eru klárlega til staðar. Það er bara þetta gamla íslenska, að fara ekki algjörlega fram úr sér. Þeir eru með gott lið, búnir að vinna Spánverja svo eitthvað sé talið, og með góða leikmenn í sterkum liðum í stóru hlutverki. Vissulega möguleikar en ég held þetta sé algjörlega 50/50 og að fara í undanúrslit með okkar lið væri algjörlega magnað,“ segir Sigursteinn að lokum.

Allt innslagið úr Sportpakka kvöldsins má sjá hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×