Innlent

Fresta gjald­skyldu við Land­spítala skömmu eftir að hún var kynnt

Jón Þór Stefánsson skrifar
Gjaldskyldan hefði náð yfir um 1280 stæði, sem eru ætluð starfsfólki, skjólstæðingum og aðstandendum. Rúmlega tvöhundruð starfsmenn höfðu mótmælt ákvörðuninni.
Gjaldskyldan hefði náð yfir um 1280 stæði, sem eru ætluð starfsfólki, skjólstæðingum og aðstandendum. Rúmlega tvöhundruð starfsmenn höfðu mótmælt ákvörðuninni. Vísir/Vilhelm

Fyrirhugaðri gjaldtöku við húsnæði Landspítalans á Hringbraut og við Landakot hefur verið frestað. Gjaldtakan átti að hefjast 1. nóvember næstkomandi. Starfsmönnum spítalans var tilkynnt þetta í dag, en hafði skömmu áður verið greint frá gjaldtökunni.

Rúmlega tvöhundruð manns hafa mótmælt fyrirhugaðri gjaldtöku í undirskriftasöfnun á netinu. Þar hafa ýmsir starfsmenn spítalans skrifað athugasemdir þar sem þeir útskýra hvernig gjaldtaka myndi henta sér illa.

Andri Ólafsson, samskiptastjóri Landspítalans, segir ljóst að umræddar breytingar hafi þarfnast frekari kynningar og meiri umræðu innan Landspítalans. „Forstjóri hefur því ákveðið að fresta gildistöku að sinni og fara betur yfir málið, meðal annars á starfsmannafundi þar sem farið verður yfir þau sjónarmið sem mestu máli skipta.“

Bílastæðin sem um ræðir eru 1280 talsins, en þau eiga einungis að vera ætluð starfsfólki, skjólstæðingum og aðstandendum.

„Við starfsfólk Landspítala Hringbrautar mótmælum harðlega að þurfa að borga fyrir bílastæði við vinnustað okkar. Ekki er sanngjarnt að mismuna ríkisstarfsmönnum og hvað þá að leggja álögurnar eingöngu á ákveðin hóp Landspítalastarsmanna.“ segir á síðu undirskriftasöfnunarinnar

„Samgöngur í Reykjavík bjóða ekki uppá að mæta á réttum tíma í vinnuna (kl.07). Starfsmenn búa í mismunandi sveitafélögum sem ekki bjóða uppá almenningssamgöngur.“

Fréttastofa hefur undir höndum tölvupóst sem stjórnendur spítalans fengu sendan fyrr í þessari viku þar sem áformin voru kynnt. Þar sagði að gjaldskylda hefði verið tekin upp fyrir bílastæði umhverfis bílastæði Landspítalans. Þar af leiðandi segir að spítalinn þurfi að grípa til aðgerða til að sporna við mikilli ásókn í bílastæðin sín.

„Breytingin er í takti við umhverfis- og loftslagsstefnu Landspítala sem hefur að markmiði að draga úr bílaumferð, minnka kolefnisspor og hvetja til grænni samgöngumáta.“ segir í tölvupóstinum.

Þá er greint frá samkomulagi sem hafi verið gert við fyrirtækið Green Parking, sem muni sjá til þess að starfsmenn geti fengið aðgang að bílastæðunum sem um ræðir fyrir þúsund krónur á mánuði, með því að skrá bílana sína.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×