Innlent

Meint líkams­á­rás lög­manns ekki á borði lög­reglu

Árni Sæberg skrifar
Lögmaðurinn er með málflutningsréttindi fyrir Hæstarétta. Hann gæti tapað þeim í kjölfar árásarinnar.
Lögmaðurinn er með málflutningsréttindi fyrir Hæstarétta. Hann gæti tapað þeim í kjölfar árásarinnar. Vísir/Vilhelm

Meint líkamsárás sem nafntogaður hæstaréttarlögmaður er sagður hafa framið í verslun í miðbæ Reykjavíkur á dögunum hefur ekki ratað inn á borð lögreglu.

Heimildir Vísis herma að lögmaðurinn, sem er eigandi á einni stærstu og virtustu lögmannsstofu landsins og hefur reglulega ratað ofarlega á blað í tekjublöðum, hafi veist að verslunareiganda í verslun hans í miðbænum á miðvikudag. 

Verslunareigandinn er eiginmaður annars eiganda á sömu lögmannsstofu og árásin er sögð tengjast sambandi lögmannanna tveggja. Í frétt Mannlífs, sem greindi fyrst frá málinu, segir að verslunareigandinn hafi hlotið brákuð rifbein og áverka á hálsi og nefi eftir árásina.

Elín Agnes Kristínardóttir, aðstoðaryfirlögreglþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að engin kæra hafi borist vegna málsins og það sé ekki til rannsóknar.

Fari svo að málið rati til lögreglu og endi með sakfellingu fyrir líkamsárás mun lögmaðurinn tapa málflutningsréttindum sínum, enda mega lögmenn ekki hafa gerst sekir um refsiverðan verknað.

Hvorki hefur náðst í lögmanninn né verslunareigandann.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×