Sport

Sandra nýr fram­kvæmda­stjóri HK

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Sandra Sigurðardóttir, nýr framkvæmdastjóri HK
Sandra Sigurðardóttir, nýr framkvæmdastjóri HK HK

Sandra Sigurðardóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri HK. Sandra, sem hefur víðtæka reynslu úr íþróttastarfi, segir mikla vaxtamöguleika innan félagsins.

Sandra mun hefja störf hjá HK þann 1. febrúar næstkomandi. Í tilkynningu segir að Sandra hafi um árabil starfað sem yfirþjálfari og framkvæmdastjóri fimleikadeildar Hamars. Hún var einnig stjórnarmaður í fimleika- og knattspyrnudeild félagsins ásamt því að sinna stjórnarsetu og trúnaðarstörfum fyrir ýmis sérsambönd.

Þá hefur hún verið í eigin rekstri tengdum heilsueflingu, starfað sem kennari á leikskóla- og grunnskólastigi og verið leiðandi í bæjarmálum í Hveragerði. Sandra er með b.sc. gráðu í íþrótta- og heilsufræði og MBA próf frá Háskóla Íslands, hefur fjölbreytta stjórnunarreynslu og mikla reynslu af stefnumótun og innleiðingu stefnu.

Knattspyrnuhöllinn Kórinn.Vísir/Vilhelm

Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, formaður HK segir mikilvæg verkefni framundan hjá félaginu. Það sé ánægjulegt að svo öflugur leiðtogi með fjölbreyttan bakrunn hafi verið ráðin til starfsins.

„Rekstur stórs íþróttafélags eins og HK, með margar og ólíkar deildir, er umfangsmikill og mikilvægt að starfið sé leitt með öflugri forystu og framsýni í huga. Stefna okkar og grunnmarkmið er að um æfingasvæðið okkar hlaupi brosandi og örugg börn sem fyrr, meistaraflokkar nái árangri í sínum deildum og starfsfólk félagsins sé ánægt.“

Þá sé vinna hafin í samstarfi við bæjaryfirvöld, um uppbyggingu á stúku á félagssvæði félagsins á Vatnsenda.

Hlakkar til að stækka HK hjartað

Sjálf segist Sandra mæta spennt til leiks og hana hlakki til að stækka og efla HK hjartað.

„Félagið hefur mikla vaxtamöguleika í gegnum allar þær fjölbreyttu deildir sem þar eru og komandi uppbyggingu á félagssvæðinu. Við erum með öflug þjálfarateymi og metnaðarfulla sjálfboðaliða sem ég hlakka til að starfa með auk þeirra tæpu þrjú þúsund iðkenda sem hjá félaginu eru. Við ætlum að fjölga þeim enn frekar um leið og við skilum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×