Handbolti

„Við ætlum að skemma stemninguna þeirra“

Sindri Sverrisson skrifar
Ómar Ingi Magnússon er sannkallaður burðarás í íslenska landsliðinu enda flestir sammála um að hann sé einn albesti sóknarmaður heims.
Ómar Ingi Magnússon er sannkallaður burðarás í íslenska landsliðinu enda flestir sammála um að hann sé einn albesti sóknarmaður heims. VÍSIR/VILHELM

Ómar Ingi Magnússon vonast eftir að fyrsti „heili, góði“ leikur Íslands á EM í handbolta komi í kvöld, í „geggjaðri“ stemningu í Lanxess-höllinni í Köln þar sem Ísland mætir Þjóðverjum.

Íslenska liðið mætti til Kölnar síðdegis í gær, þökk sé aðstoð frá Svartfellingum með að komast í milliriðilinn. Ómar og félagar vilja hrista af sér vonbrigðin gegn Ungverjum í síðasta leik og sýna hvað í þá er spunnið í kvöld.

Upphafsstaðan í milliriðli 1. Spilaðir verða þrír leikir í dag og á Ísland lokaleikinn, við Þýskaland.

„Við erum náttúrulega hundfúlir með frammistöðuna. Þetta er alls ekki nógu gott og við þurfum að skoða það og sjá hvað við getum gert betur.

Það hafa komið skorpur hér og þar sem hafa verið allt í lagi en við höfum ekki náð einum, heilum góðum leik hingað til. Það viljum við bæta. Fara að vera stöðugir í okkar leik. Mótið er ekki búið og við þurfum að vera jákvæðir áfram, megum ekki gefast upp. Við þurfum að finna lausnir og þá er allt opið í þessu,“ segir Ómar.

Klippa: Ómar Ingi klár í kvöldið

„Kannski eitthvað í hausnum hjá manni“

Ómar er einn af bestu sóknarmönnum heims í dag og blómstrar nánast í hverri viku með besta liði Þýskalands, en hefur verið fjarri sínu besta á EM. Hvað vantar í íslenska liðið sem hann hefur hjá Magdeburg?

„Þetta snýst ekkert um mig. Liðið þarf að spila vel, allir þurfa að spila vel. Aðalatriðið er að liðið standi sig.

Mér finnst vörnin hafa verið skárri en sóknarleikurinn. Það vantar einhvern takt eða flæði í sóknarleikinn. Það er ekki alveg nógu mikið af lausnum þar. Það er aðaldæmið. Svo þurfum við mögulega að skoða [vannýtt] færi og tapaða bolta. Þar er þetta kannski eitthvað í hausnum hjá manni,“ segir Ómar sem býr sig undir erfiðan leik í kvöld:

„Þetta verður hörkuleikur. Þeir eru með hörkulið, stabílir á öllum sviðum og gera allt vel. Það eru ekkert allt of miklar sveiflur í þeirra leik og þeir eru bara vel mannaðir.

Það verður geggjað að spila á móti Þýskalandi hérna, fyrir framan þýska áhorfendur, og við ætlum að skemma stemninguna þeirra.“

Næsti leikur Íslands á EM er gegn Þýskalandi í kvöld klukkan 19:30 að íslenskum tíma. Öflugt teymi Vísis og Stöðvar 2 er í Þýskalandi og fjallar um mótið í máli og myndum.


Tengdar fréttir

Alfreð Gíslason ætlar að syngja báða þjóðsöngvana

Áhuginn á Alfreð Gíslasyni, landsliðsþjálfara Þýskalands, og þýska liðinu er magnaður. Það var heldur betur fjölmennt á fjölmiðlafundi hans í Lanxess-höllinni í gær. Það var her manna að elta kóng handboltans í landinu.

„Ég verð honum ævin­lega þakk­látur“

„Hann hefur haft gríðarleg áhrif [á mig og minn feril], örugglega einna mest,“ segir Aron Pálmarsson um Alfreð Gíslason, fyrrverandi læriföður sinn, sem stýrir Þýskalandi gegn Íslandi á EM í kvöld.

„Getur annað hvort lagst niður eða reynt að rísa upp“

Bjarki Már Elíasson, hornamaður íslenska karlalandsliðsins í handbolta, sagði liðið hafa svekkt sig mikið á tapinu gegn Ungverjum í gær. Hann kvaðst þó bjartsýnn fyrir leikinn á morgun og telur liðið geta stillt saman strengi sína. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×