Foden með sýningu og Man City gefur ekkert eftir í topp­bar­áttunni

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Phil Foden spilaði svo vel að Kevin de Bruyne gat leyft sér að sitja á bekknum í kvöld.
Phil Foden spilaði svo vel að Kevin de Bruyne gat leyft sér að sitja á bekknum í kvöld. Michael Regan/Getty Images

Phil Foden skoraði þrennu í gríðarlega öruggum sigri Englandsmeistara Manchester City á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni, lokatölur 4-1.

Spænski miðjumaðurinn sem kann ekki að tapa leik, Rodri, kom meisturum Man City yfir eftir 11. mínútur með skoti úr teignum eftir fyrirgjöf Jérémy Doku. Öllum að óvörum jafnaði Villa metin þökk sé marki Jhon Durán rétt tæpum tíu mínútum síðar. Færið mjög þröngt og setja má spurningu við varnarleik City sem og markvörð liðsins, Stefan Ortega.

Eftir það tók Phil Foden einfaldlega yfir leikinn. Hann kom Man City yfir á uppbótartíma fyrri hálfleiks með marki úr aukaspyrnu og bætti við öðru marki sínu þegar rúmur klukkutími var liðinn með skoti úr teignum, stöng og inn.

Á 69. mínútu gulltryggði hann svo sigurinn sem og þrennu sína með glæsilegu marki. Fannst á sér brotið, fór og vann boltann rétt fyrir utan teig áður en hann þrumaði honum upp í samskeytin nær. Magnað mark og staðan orðin 4-1, reyndust það lokatölur kvöldsins.

Englandsmeistarar Man City eru í 3. sæti með 67 stig líkt og Liverpool á meðan Arsenal er á toppnum með 68 stig. Liverpool á leik til góða. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira