Innlent

Svona var Pall­borðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ó­línu

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Halla Tómasdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Katrín Jakobsdóttir verða gestir Pallborðsins í dag.
Halla Tómasdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Katrín Jakobsdóttir verða gestir Pallborðsins í dag. Vilhelm

Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, Halla Tómasdóttir athafnakona og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona verða gestir Pallborðsins í dag, sem hefst klukkan 15.

Katrín hefur mælst með mest fylgi í flestum skoðanakönnunum hingað til en í síðustu könnun Maskínu, sem unnin var fyrir Vísi, Stöð 2 og Bylgjuna dagana 12. til 16. apríl, reyndist hún njóta stuðnings 32,4 prósent aðspurðra.

Næstir á eftir voru Baldur Þórhallsson, Jón Gnarr og Halla Hrund Logadóttir. Stuðningur við Höllu Tómasdóttur mældist 6,7 prósent og stuðingur við Steinunni Ólínu 1,8 prósent.

Þetta er í annað sinn sem Halla Tómasdóttir býður sig fram til forseta en hún varð önnur á eftir Guðna Th. Jóhannessyni, núverandi forseta, árið 2016. Hlaut hann 39,1 prósent atkvæða en Halla 27,9 prósent.

Steinunn Ólína greindi frá því í lok mars að hún myndi sækjast eftir forsetaembættinu ef Katrín Jakobsdóttir færi fram.

„Baráttan um Ísland snýst aðallega um íslenska náttúru og auðlindirnar sem eiga að vera sameign þjóðarinnar. Það fjöregg fengum við í arf og okkur ber að skila því heilu til næstu kynslóða.

Nú vegur þyngst að ég treysti ekki Katrínu Jakobsdóttur, að fenginni reynslu, til að gæta þessa fjöreggs okkar. Það er þyngra en tárum taki.“

Pallborðið er sýnt í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi.

Uppfært klukkan 16:10

Pallborðinu er lokið en upptöku má sjá að neðan. Þar að neðan má svo sjá vaktina frá því þegar Pallborðið stóð yfir. Ef vaktin sést ekki, gæti þurft að endurhlaða síðuna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira
×