Innlent

„Það er norskur sigur í dag“

Jakob Bjarnar skrifar
Ljósmyndir úr dróna frá laxeldi í Patreksfirði.
Ljósmyndir úr dróna frá laxeldi í Patreksfirði. vísir/einar

Í dag klukkan eitt í dag fer Gunnar Örn Hauksson flugmaður til sýslumanns og gerir honum grein fyrir því að hann eigi ekki hundrað milljónir króna til að greiða tryggingu vegna lögbannskröfu á sjókví úti fyrir landi hans á Snæfjallaströnd.

Þetta þýðir að Artic Sea Farm fer með fullan sigur í málinu en Katrín Oddsdóttir lögmaður hans hafði farið fram á lögbannsbeiðni vegna starfseminnar en sjókvíaeldisfyrirtækið hafði sett niður kví án þess að fyrir lægi hvort eldissvæðið væri innan landamarka jarðar hans Sandeyri á Snæfjallaströnd. Þar er stórstreymt og fjarar vel út. Áhöld eru uppi um hvort svæðið sé innan netalaga.

Sýslumaður mætti lögbannskröfunni með því að fara fram á tryggingu sem nemur hundrað milljónum króna. Hvorki Jónas Guðmundsson sýslumaður á Ísafirði né staðgengill hans, Sigríður Eysteinsdóttir sem staðsett er á Patreksfirði, voru laus nú fyrir hádegi til að svara þeirri spurningu hvaðan sú upphæð væri eiginlega fengin. Katrín telur einsýnt að það sé til að drepa lögbannskröfuna, talan sé óskiljanleg en oftast sé um málamyndagjald að ræða. 

Hún veltir fyrir sér hvaðan talan sé fengin, hvort hún komi frá Artic Sea Farm. Þá hefur hún velt fyrir sér tímalínunni í málinu en fyrirtækið er þegar búið að setja fisk í umrædda kví. Víst er að náttúran sem áður var óspillt er fyrir bý. Málið er fallið um sjálft sig.

„Ég á ekki hundrað milljónir í þetta,“ segir Gunnar Örn í samtali við Vísi. „Það hefði vissulega verið gott fyrir íslensku þjóðina,“ segir Gunnar og vísar til þess að það hefði verið gott að fá úr málinu skorið. Nú líti út fyrir að enginn sé að fara að stöðva þetta.

„Okkur hefur ekkert orðið ágengt. Þetta var síðasta haldreipið og það er að falla núna. Þannig er staðan á þessu, maður var að reyna að berjast fyrir þessu en það tókst ekki. Maður reyndi sitt besta en þeir hafa sigur. Það er norskur sigur í dag,“ segir Gunnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×