Innlent

Ný skoðana­könnun á morgun og Pall­borð klukkan 14

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Halla, Katrín og Baldur mæta í Pallborðið á morgun og ræða meðal annars niðurstöður nýjustu skoðanakönnunar Maskínu, sem birtar verða samdægurs.
Halla, Katrín og Baldur mæta í Pallborðið á morgun og ræða meðal annars niðurstöður nýjustu skoðanakönnunar Maskínu, sem birtar verða samdægurs.

Baldur Þórhallsson, Halla Hrund Logadóttir og Katrín Jakobsdóttir verða gestir Pallborðsins á morgun, sem verður sýnt í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14.

Til umræðu verða meðal annars niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Maskínu fyrir fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar sem birtar verða á morgun.

Baldur, Halla og Katrín hafa verið efstu þrjú í könnunum síðustu vikur, eftir að Halla Hrund bætti verulega við sig fylgi og fór fram úr Jóni Gnarr.

Í síðustu skoðanakönnun Maskínu, sem birt var 26. apríl síðastliðinn, leiddi Halla Hrund með 26,2 prósent en Katrín var í öðru sæti með 25,4 prósent fylgi og Baldur með 21,2 prósent. Jón Gnarr mældist með 15,2 prósent og Halla Tómasdóttir með 4,1 prósent.

Þann 29. apríl var svo greint frá því að Halla Hrund hefði fengið 29 prósent fylgi í skoðanakönnun Prósents, Baldur með 25 prósent og Katrín með 18 prósent.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×