Innlent

Slags­mál enduðu með nefbroti

Árni Sæberg skrifar
Líf og fjör var í miðbænum í nótt en þessi mynd er úr safni.
Líf og fjör var í miðbænum í nótt en þessi mynd er úr safni. Vísir/Kolbeinn Tumi

Einn varð fyrir því óláni að nefbrotna í slagsmálum í miðbæ Reykjavíkur í nótt.

Þetta segir í dagbókarfærslu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir gærkvöldið og nóttina. Þar segir að tilkynnt hafi verið um slagsmálin laust fyrir klukkan 04 í nótt.

Þá segir frá ökumanni sem grunaður er um að hafa valdið umferðaróhappi í umdæmi lögreglustöðvarinnar í Hafnarfirði. Hann hafi yfirgefið vettvang óhappsins og gengið að nærliggjandi skemmtistað, þar sem hann angraði dyraverði. 

Hann hafi verið handtekinn þar fyrir utan og sé grunaður um akstur undir áhrifum áfengi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×