Innlent

Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ó­líkum áttum

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Halla Hrund segir ólíka aðila hafa komið sínu sterkt á framfæri á meðan hún gegndi embætti orkumálastjóra.
Halla Hrund segir ólíka aðila hafa komið sínu sterkt á framfæri á meðan hún gegndi embætti orkumálastjóra. Vísir/Vilhelm

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi var enn og aftur innt eftir svari við því hvort ráðherrar hafi beitt hana þrýstingi í starfi hennar sem orkumálastjóri. Hún vék sér frá beinu svari og sagði að það væri ekki hlutverk forseta að útlista einstaka samræður. Þó sagði hún að ólíkir aðilar úr stjórnmálum, viðskiptalífinu og hagaðilasamtökum hafi eðlilega komið sínu á framfæri við sig.

Halla Hrund var spurð í Pallborðinu hvort það skipti máli hvaða afstöðu forseti tæki á hinum og þessum málum. Það kom til tals að margir viti ekki almennilega fyrir hvað Halla Hrund stendur þrátt fyrir mikla fylgisaukningu nýverið.

Klippa: „Ég varð fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum“

„Auðvitað er forsetakjör mjög persónulegt að því leyti að þú ert í rauninni að stíga fram sem manneskja og fólk hefur eðlilega hugsanir og vill fá að vita um þín gildi, sýn og annað,“ sagði Halla.

Halla sagði mikilvægt að koma heiðarlega fram og kynnast kjósendum landsins en að embætti forseta Íslands væri þó ekki pólitískt embætti. Því væri ákveðin fjarlægð frá einstaka málefnum nauðsynleg.

„Eðlilega er fólk að spyrja á fundum um einstaka afstöður. Þar finnst mér mikilvægt að koma fram af heilindum og deila með fólki hvaða sýn ég hef á ólíka hluti en takandi það fram að forsetaembættið er ekki embætti sem vinnur í pólitík. forseti þarf að hafa fjarlægð frá pólitískri umræðu. Hann er ekki að stíga inn í einstaka mál,“ segir Halla.

Þrýstingur frá ráðherrum

Það vakti athygli fyrr í vikunni þegar Halla Hrund tók þátt í kappræðum Heimildarinnar. Halla var þráspurð um hvort stjórnmálamenn hefðu beitt hana þrýstingi í starfi hennar sem orkumálastjóra og sérstaklega vísað til orkumálaráðherra. Helgi Seljan, annar þáttastjórnenda, endurtók spurninguna fimm sinnum án þess að Halla hafi svara spurningunni beint.

Af hverju viltu ekki svara þessu?

„Auðvitað er það þannig að í öllum stórum embættum þar sem eru margir hagsmunir undir að það er eðlilegt að það séu stórir og ólíkir hagsmunir sem takast á. Aðilar sem eru í slíkum embættum þurfa að geta tekið á móti þeim hagsmunum, hlustað á þá og tekið síðan ákvarðanir í samræmi við lög og annað. Það er þannig sem ég hef unnið sem orkumálastjóri,“ sagði Halla.

Hún var þá aftur innt eftir beinu svari en sagði að henni fyndist þetta ekki vera spurning þar sem maður útlistaði hvað þessi sagði og hinn. Það væri ekki hlutverk slíks embættis.

„Ólíkir aðilar úr stjórnmálum, ólíkir aðilar úr viðskiptalífi, ólíkir aðilar úr hagaðilasamtökum og öðru eðlilega koma sínum málum sterkt á framfæri. Það gerist akkúrat þegar mikið er undir. Þess vegna mun þessi reynsla nýtast mér ákaflega vel í samhengi við embætti forseta Íslands. Þar sem að getur reynt á nákvæmlega sömu þætti,“ sagði Halla loks.


Tengdar fréttir

Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið

Almannatengill telur Höllu Hrund Logadóttur eiga langt í land með að tryggja sér forsetaembættið. Hún, ásamt Katrínu Jakobsdóttur, hafi ekki átt sinn besta dag í kappræðum Rúv í gær. Af efstu frambjóðendunum fjórum fannst honum Baldur Þórhallsson mæta best undirbúinn og gera fæst mistök.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×