Skoðun

Fram­bjóðandi Sjálf­stæðis­flokksins?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Fyrir átta árum síðan, í kosningabaráttunni í aðdraganda þess að Guðni Th. Jóhannesson var fyrst kjörinn forseti lýðveldisins, var hann ítrekað vændur um það úr röðum pólitískra andstæðinga sinna að vera frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins vegna þess hversu margir sjálfstæðismenn voru í kosningateymi hans. Guðni svaraði þeim aðdróttunum einfaldlega með þeim orðum að hann spyrði ekki vini sína um flokksskírteini.

Meðal þeirra sem störfuðu fyrir framboð Guðna var Friðjón R. Friðjónsson, varaþingmaður og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem var einn þriggja í framkvæmdastjórn framboðsins. Aðrir sem störfuðu fyrir framboðið voru til dæmis Janus Arn Guðmundsson, sem situr í miðstjórn flokksins, og Heimir Hannesson sem komið hafa að ýmsum kosningum bæði fyrir og innan hans en starfa nú fyrir framboð Baldurs Þórhallssonar.

Með sama hætti er nú reynt af ýmsum pólitískum andstæðingum Katrínar Jakobsdóttur að kasta rýrð á framboð hennar og gera það tortryggilegt með aðdróttunum um það að hún sé frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins. Rökin eru fyrst og fremst þau að Friðjón hafi gengið til liðs við framboðið en þau Katrín hafa verið vinir í áratugi eins og hann hefur bent á. Flestir í kosningateymi hennar koma hins vegar úr röðum Vinstri-grænna.

Gekk Guðni erinda Sjálfstæðisflokksins?

Með sömu rökum, ef rök skyldi kalla, var Guðni væntanlega frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins og af mun ríkari ástæðum í ljósi þess hversu margir innvígðir sjálfstæðismenn störfuðu fyrir framboð hans. Þar á meðal Friðjón. Þá hlýtur það sama að eiga við um Baldur sem fyrr segir og Höllu Hrund sem ýmsir innmúraðir sjálfstæðismenn starfa fyrir. Ekki sízt úr röðum þeirra sem verið hafa líkt og hún sjálf pennar á vefritinu Deiglan.

Vísað hefur verið til þess að Stefán Einar Stefánsson, umsjónarmaður Spursmáls á mbl.is, hafi farið óvægnum höndum um Baldur og Höllu í þættinum og ýjað að því án nokkurra raka að Friðjón hafi staðið þar að baki. Hins vegar er ekkert minnzt á það að Stefán var ekki síður óvæginn í garð Katrínar í þættinum þar sem rifjuð voru upp umdeildustu málin á stjórnmálaferli hennar. Þá væntanlega samkvæmt forskrift frá Friðjóni?

Mér hefur ekki virzt kjósendur þeirrar skoðunar að Guðni hafi gengið erinda Sjálfstæðisflokksins undanfarin átta ár þrátt fyrir að Friðjón hafi gegnt lykilhlutverki í kosningateymi hans. Þeir Guðni eru einfaldlega gamlir vinir rétt eins og Friðjón er gamall vinur Katrínar. Vitanlega er hér einungis um ómaklega atlögu að framboði Katrínar að ræða sem lýsir ágætlega bágri málefnastöðu þeirra sem kjósa að beita slíkum meðölum.

Valdapólitíkus sem vill miklu minni völd?

Fleiri tilraunir hafa verið gerðar til þess að reyna að kasta rýrð á forsetaframboð Katrínar. Þar á meðal að saka hana um að vera „valdapólitíkus“ þrátt fyrir þá staðreynd að hún sagði af sér valdamesta embætti landsins til þess að eiga einungis möguleika á því að vera kosin í líklega valdaminnsta embættið. Þá sagði hún enn fremur af sér þingmennsku án þess að þurfa þess auk flokksformennsku. Hefði valdapólitíkus gert það?

Talsvert hefur annars verið lagt á sig af pólitískum andstæðingum Katrínar til þess að reyna að gera þátttöku hennar í stjórnmálum tortryggilega. Eðlilega eru skiptar skoðanir á þeim sem gefa sig að stjórnmálum en um leið er um að ræða afar mikilvæga reynslu. Fullyrða má til að mynda að Ólafur Ragnar Grímsson hefði ekki vísað Icesave-samningunum í þjóðaratkvæði ef ekki hefði verið fyrir hans miklu reynslu í þeim efnum.

Fjölbreyttur hópur kjósenda hyggst greiða Katrínu atkvæði sitt miðað við niðurstöður skoðanakannana og þar á meðal og ekki sízt með tilliti til þess hvar fólk stendur í pólitíkinni. Þannig kemur til dæmis fram í Morgunblaðinu í dag að Katrín höfði hvað jafnast til ólíkra þjóðfélagshópa af þeim sem eru í framboði miðað við kannanir. Nokkuð sem hlýtur fyrir utan annað að teljast mikill kostur þegar forsetaframbjóðandi er annars vegar.

Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál).



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×