Innlent

Skúli Tómas sinnir sjúk­lingum af og til

Árni Sæberg skrifar
Skúli Tómas starfar á Landspítalanum í Fossvogi.
Skúli Tómas starfar á Landspítalanum í Fossvogi. Vísir

Skúli Tómas Gunnlaugsson, læknir sem grunaður er um að hafa mögulega valdið ótímabærum andlátum níu sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja á árunum 2018 til 2020, sinnir af og til sjúklingum á Landspítalanum.

Vísi barst á dögunum ábending frá aðstanda sjúklings á Landspítalanum að Skúli Tómas hafi komið að ummönnun sjúklinga. Hann hóf störf á spítalanum á ný í janúar síðasta árs, á þeim forsendum að hann myndi ekki koma beint að því að sinna sjúklingum.

Skúli Tómas hafði verið sendur í leyfi í maí árið 2022 þar sem erfitt var að tryggja að hann kæmi ekki að umsjá sjúklinga á spítalanum. 

Má bara starfa á Landspítala

Hann starfar á Landspítala á takmörkuðu lækningaleyfi frá Landlækni, sem bundið er við Landspítalann. Þannig getur hann hvergi annars staðar starfað sem læknir. 

Þegar hann var ráðinn til Landspítalans var honum falið það verkefni að að yfirfara gögn sjúklinga til stuðnings við störf annarra lækna á A2, bráðadagdeild lyflækninga. Ekki stóð til að hann yrði í samskiptum við sjúklinga á meðan hann væri í endurmenntun og þjálfun á spítalanum.

Í aðdraganda þess að hann var sendur í leyfi árið 2022 höfðu af og til komið upp neyðartilfelli þar sem hann sinnti sjúklingum vegna manneklu og undirmönnunar.

Sama uppi á teningnum núna

Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum hefur engin breyting orðið á ráðningarsamningi Skúla Tómasar og Landspítalans. Hann starfi eftir sem áður á bráðadagdeild lyflækninga við að yfirfara gögn.

Þó hafi af og til komið upp á spítalanum, vegna manneklu og undirmönnunar, neyðartilfelli þar sem Skúli Tómas sinnir sjúklingum.

Mál Skúla Tómasar er enn á borði Héraðssaksóknara, að því er segir í svari embættisins við fyrirspurn Vísis.


Tengdar fréttir

„Mamma okkar var drepin, hún var tekin af lífi“

„Það er rosalega erfitt að rifja þetta allt upp, rífa upp þessi sár. Það sem mér finnst eiginlega verst er að öll þessi umræða er að skyggja á allar fallegu minningarnar sem ég á af henni mömmu. Í staðinn fyrir eitthvað sem er falleg og góð minning kemur bara endalaus reiði og heift.“ 

Segir um­mæli Skúla undar­leg og fyrir­slátt

Dóttir konu sem lést eftir að hafa verið sett í lífslokameðferð á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja segir ummæli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem grunaður er um að hafa sett sjúklinga í lífslokameðferð án tilefnis, vera undarleg og fyrirslátt. Hún segir svo virðast að Skúli Tómas sé ekki í tengslum við raunveruleikann.

Páll og fleiri læknar taka upp hanskann fyrir Skúla Tómas

Páll Matthíasson fyrrverandi forstjóri Landspítalans veltir því upp í stuðningsyfirlýsingu við Skúla Tómas Gunnlaugsson hjartalækni hvort það sé aflagt að fólk sé saklaust uns sekt sé sönnuð. Hann segir fjölmiðla hafa farið offari í málinu. Páll og Skúli Tómas eru samkvæmt upplýsingum fréttastofu miklir vinir, hluti af nánum vinahóp og voru samferða í gegnum læknanámið hér á landi á sínum tíma.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×