Innlent

Fylgjast grannt með gangi mála

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Fjárhundur sem komst í lamb sem hafði drepist í sauðburði. Hægra meginn er lamb sem hafði flækst í girðingunni.
Fjárhundur sem komst í lamb sem hafði drepist í sauðburði. Hægra meginn er lamb sem hafði flækst í girðingunni. Aðsend/Steinunn Árnadóttir

Matvælastofnun hefur á undanförnum mánuðum haft afskipti af sauðfjárbúskap á bæ í Borgarfirði, sem gera má ráð fyrir að sé Höfði í Þverárhlíð. Mikil umræða hefur verið um slæman aðbúnað sauðfjár á bænum Höfða í Þverárhlíð á samfélagsmiðlum og í fréttum síðustu vikur.

Dýraverndunarsamband Íslands (DÍS) sakaði Matvælastofnun fyrr í dag um að hafa ekki sinnt lögbundnu hlutverki sínu að verja velferð dýra á bænum Höfða. Stjórn samtakanna hefur sent frá sér ákall um að dýrunum á bænum verði tafarlaust komið til bjargar, en bent hefur verið á slæman aðbúnað dýra við bæinn í árabil. Sagt hefur verið að slæmur aðbúnaður dýranna hafi verið opinbert leyndarmál í rúm fimmtán ár.

Myndir af sauðfé í slæmu ásigkomulagi fara reglulega í dreifingu á netinu og vekja vitaskuld upp mikla reiði. Stjórnvöld hafa verið sökuð um að aðhafast ekkert í þessu meinta dýraníði. Þá hefur Matvælastofnun verið sökuð um að hafa sýnt „langlundargeð í einstaka málum þar sem velferð dýra er ábótavant.“

Hafa gert athugasemdir og ítrekað kröfur um úrbætur

MAST svaraði fyrir sig í dag en í tilkynningu frá þeim segir að Matvælastofnun hafi „á undanförnum mánuðum haft afskipti af sauðfjársbúskap á bæ í Borgarfirði.“ Starfsmenn stofnunarinnar hafi farið í eftirlitsferðir á viðkomandi bú þar sem gerðar voru athugasemdir m.a. við aðbúnað af ýmsu tagi. Þær hafi í vissum tilfellum verið framkvæmdar, en ekki alltaf.

Þá segir að kröfur um úrbætur hafi þá verið ítrekaðar og stuttur frestur gefinn til framkvæmda, og að gripið hafi verið til þvingana ef ekki hafi verið brugðist við „á ásættanlegan hátt.“ 

„Gerðar hafa verið kröfur um að ábúendur sæki sér aðstoð við búskapinn, einkum yfir sauðburð og hefur verið gert þar sem fylgst er með sauðburði, lömb mörkuð og gefin lyf. Áhersla hefur verið lögð á að fé sé haldið innan girðingar þar til lömb væru orðin sæmilega stálpuð. Séð hefur verið til þess að dýrin hafi ávallt aðgang að nægu heilnæmu vatni og fóðri,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að Matvælastofnun taki allar ábendingar alvarlega sem berist til stofnunarinnar. Sagt er að stofnunin hafi málið til meðferðar og fylgist grannt með framgangi mála.


Tengdar fréttir

Meint dýra­níð látið við­gangast í ára­raðir

Íbúi í Borgarfirði segir fé á bænum Höfða í Borgarfirði hafa búið við slæman aðbúnað í áraraðir. Húsakostur rúmi ekki allt féð sem ráfi vannært og illa farið um sveitina. Hvorki Matvælastofnun né sveitarstjóri geri nokkuð í málinu sem hafi verið opinbert leyndarmál í rúm fimmtán ár.

Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð

Dýraverndunarsamband Íslands (DÍS) segir Matvælastofnun ekki sinna lögbundnu hlutverki sínu að verja velferð dýra á bænum Höfða í Þverárhlíð í Borgarbyggð. Stjórn samtakanna hefur sent frá sé ákall um að dýrunum á bænum verði tafarlaust komið til bjargar. Bent hefur verið á slæman aðbúnað dýra við bæinn um árabil. 

Upplýsingafulltrúi væri kærkomin viðbót hjá MAST

Forstjóri Matvælastofnunar segir að ný skýrsla Ríkisendurskoðunar, þar sem ýmsar athugasemdir eru gerðar við starfsemi stofnunarinnar, varpi fyrst og fremst ljósi á viðvarandi fjárskort MAST. Stofnunin muni taka ábendingar í skýrslunni til sín, sem gefi mögulega tilefni til þess að endurskoða þörf á upplýsingafulltrúa.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×