Innlent

Sauð upp úr milli bónda og dýra­verndunar­sinna

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Litlu munaði að til átaka kæmi þegar dýraverndarsinnar rifust við bóndann á Höfða í Þverárhlíð um meinta vanrækslu hennar á sauðfé. Hægra megin stendur kind yfir látnu lambi.
Litlu munaði að til átaka kæmi þegar dýraverndarsinnar rifust við bóndann á Höfða í Þverárhlíð um meinta vanrækslu hennar á sauðfé. Hægra megin stendur kind yfir látnu lambi. Vísir

Lögreglan var kölluð til þegar upp úr sauð milli dýraverndunarsinna og ábúenda á sveitabæ í Borgarfirði í gær. Dýraverndarsinnar fóru með hey til til kindanna og ábúandi kom og ógnaði þeim með spjóti. Mikið hefur verið fjallað um slæman aðbúnað sauðfjár á bænum síðustu daga. 

Kindurnar á bænum Höfða í Þverárhlíð eru sagðar veikar, horaðar, og í miklum vanhöldum. MAST hefur verið sökuð um að leyfa dýraníði að viðgangast, en þvertekur fyrir það. Nú síðast á fimmtudaginn heimsótti fréttastofa Stöðvar 2 bæinn og tók myndefni.

Ingiveig Gunnarsdóttir er í forsvari fyrir hóp sem heitir „Björgum dýrum í neyð“ á Facebook. Hún fór ásamt föruneyti á sveitabæinn Höfða til að gefa kindunum á bænum hey. Hún segir að þau hafi ekki stigið fæti inn á einkalóð heldur verið á þjóðveginum allan tímann. Þau hafi þó komið heyi yfir girðinguna þar sem kindurnar voru. Þegar lögreglan kom á vettvang hafi hún bent á að það væri ólöglegt.

„Þau eru ekki að deyja úr hungri!“

Skömmu eftir að Ingiveig og föruneyti höfðu komið heyinu til kindanna kom ábúandinn á Höfða akandi á móti þeim, og stöðvaði bifreið sína þannig að þau kæmust ekki í burtu. Hún var fokreið yfir háttsemi dýraverndunarsinnanna og ekki leið á langt þar til upp úr sauð. Vísir hefur undir höndum myndband af samskiptum fólksins.

Vanræktar kindur á bænum, fyrir framan hey sem Ingiveig segir ónýttSteinunn Árnadóttir

„Við höfum aðstoð, sauðburður er búinn hjá okkur, og ég bara vil ekki þessa djöfulsins afskiptasemi. Þessi djöfulsins píka, Steinunn Árnadóttir, er búin að vera leggja okkur í einelti,“ segir bóndinn. Hún segir að MAST hafi sinnt lögbundnu eftirliti hjá þeim eins og öllum öðrum. Það sé á færi þeirra að meta aðstæður og veita aðstoð ef þurfa þykir. 

Rifrildið hélt svo áfram þar sem Ingiveig og María vildu endilega að bóndinn myndi þiggja heyið sem þau höfðu komið með. Bóndinn þvertók fyrir það að ástand sauðfésins væri slæmt og vildi ekkert kannast við það að lömb væru að deyja úr hungri. Mikill hiti var í samræðunum og fór það svo að bóndinn veittist að Ingiveigu sem sat í bílnum með priki, þegar hún hafði sakað bóndann um vanrækslu.

Bóndinn vildi ekki kannast við að hafa vanrækt kindur sínar og ógnaði bílstjóranum með prikiVísir

Ingiveig hafi þá hringt á lögregluna, og þegar hún kom á vettvang hafi hún sagt þeim að fjarlægja heyið, þar sem lóðin væri einkalóð. Meint vanræksla kindanna skipti engu máli hvað það varðar.

Þangað settu Ingiveig og föruneyti heyiðIngiveig
Hræ af lambiIngiveig
Hræ af kindIngiveig

Ekki er fyrirséð hvernig þetta mál mun þróast áfram en ljóst er að dýraverndarsinnum víða um land blöskrar meðferðin og ástand dýranna sem birtist miðlunum. Matvælastofnun hefur verið gefið að sök að leyfa þessu að viðgangast í að verða um tuttugu ár. MAST hefur hafnað því að þau fylgist ekki með velferð dýranna á þessum bæ. Stofnunin gaf frá sér tilkynningu á miðvikudaginn sem sagði að þau hefðu gert margvíslegar athugasemdir og ítrekað kröfur um úrbætur á bænum. Fyrri fréttir af málinu má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð

Dýraverndunarsamband Íslands (DÍS) segir Matvælastofnun ekki sinna lögbundnu hlutverki sínu að verja velferð dýra á bænum Höfða í Þverárhlíð í Borgarbyggð. Stjórn samtakanna hefur sent frá sé ákall um að dýrunum á bænum verði tafarlaust komið til bjargar. Bent hefur verið á slæman aðbúnað dýra við bæinn um árabil. 

Meint dýra­níð látið við­gangast í ára­raðir

Íbúi í Borgarfirði segir fé á bænum Höfða í Borgarfirði hafa búið við slæman aðbúnað í áraraðir. Húsakostur rúmi ekki allt féð sem ráfi vannært og illa farið um sveitina. Hvorki Matvælastofnun né sveitarstjóri geri nokkuð í málinu sem hafi verið opinbert leyndarmál í rúm fimmtán ár.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×