Innlent

Gæti gegnt mikilvægu ráðgjafarhlutverki

Mikilvægi Íslands Paul Collier segir þróunarlönd geta lært mikið af uppgangi Íslands úr fátækt til velmegunar. 
Fréttablaðið/Vilhelm
Mikilvægi Íslands Paul Collier segir þróunarlönd geta lært mikið af uppgangi Íslands úr fátækt til velmegunar. Fréttablaðið/Vilhelm
Hagfræðingurinn Paul Collier, sem hefur helgað sig rannsóknum á þróunarríkjum og þróunaraðstoð, segir Ísland geta gegnt mikilvægu hlutverki á sviði þróunaraðstoðar.

Collier hélt vel sóttan fyrirlestur í Öskju fyrir helgi, sem var í tilefni af 40 ára afmæli íslenskrar þróunarsamvinnu. Eftir fundinn sagði hann í viðtali við Fréttablaðið að mörg þróunarlandanna bæru svipuð einkenni og Ísland á árum áður.

„Þau eru mörg hver smá, afskekkt, hafa gengið í gegnum efnahagsáföll og eru oftar en ekki auðug af náttúruauðlindum. Ég hefði þess vegna getað verið að lýsa Íslandi, en munurinn er að þið hafið barist frá fátækt upp í velmegun, andstætt hinum löndunum. Það gefur ykkur trúverðuga rödd í samskiptum við þessi ríki,“ sagði Collier.

Við það bætist, að sögn Colliers, að þau ríki sem helst standa höllum fæti, en eru að reyna að vinna sig upp, leita síður til stærri ríkja á alþjóðasviðinu.

„Löndin á botninum eru mun viljugri til að læra af ykkur en frá fyrrverandi nýlenduveldum eða risaveldunum á heimsvísu. Til dæmis hafa fimmtíu þróunarlönd leitað til Noregs vegna ráðgjafar um umsýslu alþjóðlegra eigna. Það er miklu ásættanlegra en að leita til Bandaríkjanna um svipuð mál. Þess vegna gæti Ísland með öllum sínum kostum og göllum verið góð fyrirmynd fyrir mörg lönd sem hafa nýlega öðlast meiri velmegun.“

- þj



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×