Innlent

Geislafræðingar vilja geta lifað af daglaunum sínum

Þorgils Jónsson skrifar
Katrín Sigurðardóttir, formaður Félags íslenskra geislafræðinga, segir stéttina haf setið eftir í kjörum, en tveir af hverjum þremur geislafræðingum við Landspítalann hafa sagt upp störfum og hætta á fimmtudaginn.
Katrín Sigurðardóttir, formaður Félags íslenskra geislafræðinga, segir stéttina haf setið eftir í kjörum, en tveir af hverjum þremur geislafræðingum við Landspítalann hafa sagt upp störfum og hætta á fimmtudaginn.
Meginkrafa geislafræðinga við Landspítalann er sú að geta lifað af launum sínum fyrir venjulega vinnuviku. Þetta segir Katrín Sigurðardóttir, formaður Félags íslenskra geislafræðinga í samtali við Fréttablaðið.

Geislafræðingar og stjórnendur Landspítala hitta Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra í dag til að ræða kjaradeiluna við Landspítalann. Uppsagnir um tveggja af hverjum þremur geislafræðingum við spítalann taka gildi á fimmtudaginn.

„Við geislafræðingar höfum verið á lægri launum en aðrar stéttir með sambærilega menntun og viljum fá leiðréttingu á okkar kjörum,“ segir Katrín, en dagvinnulaun geislafræðinga eru að hennar sögn um 300 þúsund krónur. Geislafræði er fjögurra ára háskólanám.

„Svo er þetta mjög sérhæft starf og verðmætt sem ætti að okkar mati að meta eftir því,“ segir hún.

Annað atriði sem Katrín nefnir er vaktafyrirkomulag sem hún segir afar krefjandi.

„Það felur í sér margar bakvaktir og mikið álag sem þýðir að fólk er alltaf að vinna. Við viljum bara 40 stunda vinnuviku eins og aðrir án þess botninn detti úr okkar launum.“

Katrín segist vera bjartsýn um að fundurinn í dag skili nokkrum árangri, þrátt fyrir að málið snúi fyrst og fremst að fjármálaráðuneytinu.

„Ef menn fara að skoða málið ættu þeir að sjá að við höfum ýmislegt til okkar máls.“

Kristján Þór Júlíusson
Ráðherra segir í samtali við Fréttablaðið að hann hyggist hitta geislafræðinga og fulltrúa Landspítalans í dag til að glöggva sig á stöðu mála. Hann segist ekki vilja gefa sér að allt fari á versta veg.

„Ég bind vonir við að aðilar málsins nái saman. Ég held að það sé öllum fyrir bestu,“ segir hann.

„Mín nálgun á þetta mál er að hvetja aðila máls til að leggja sig fram um að ná lendingu og ég er tilbúinn til að leggja þeim lið við það, en fyrst og fremst er þetta útfærsla á stofnanasamningi milli starfsmanna og stjórnenda á Landspítalanum.“

Ekki hefur verið boðað til fleiri funda í deilunni milli geislafræðinga og Landspítalans. Tveir fundir voru haldnir í síðustu viku, en lítið þokaðist í samkomulagsátt.

Tvær stéttir hafa þegar fengið hækkun
  • Katrín Sigurðardóttir, formaður Félags íslenskra geislafræðinga segir að kröfur geislafræðinga miði ekki við aðrar stéttir. Þó má nefna að Landspítalinn hefur á síðustu mánuðum samið um nýja stofnanasamninga við hjúkrunarfræðinga og lífeindafræðinga. Þar fengu félagsmenn hækkun upp á einn til tvo launaflokka sem jafngildir fimm til tíu prósenta launahækkun.

  • Í úttekt fjármálaráðuneytisins frá því fyrr á þessu ári kemur í ljós að meðaltal dagvinnulauna geislafræðinga var um 350.000 í marsmánuði og meðaltal heildarlauna með yfirvinnu og vaktaálagi var 550.000.

  • Á sama tíma var meðaltal dagvinnulauna hjá hjúkrunarfræðingum um 413.000 og meðaltal heildarlauna var um 586.000.
 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×