Gerðu 4,9 milljarða samning við Thorsil Samúel Karl Ólason skrifar 27. febrúar 2016 17:03 Eyjólfur Árni Rafnsson, framkvæmdastjóri iðnaðar hjá Mannviti, Sigurhjörtur Sigfússon, forstjóri Mannvits, Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri Thorsil og Gunnar Jónsson, lögmaður.
Fyrirtækið Mannvit gerði 4,9 milljarða króna samning við Thorsil ehf. varðandi byggingu kísilvers í Helguvík. Um er að ræða svokallaðan EPCM samning sem er alhliða samningur um hönnun, innkaup og umsjón framkvæmda og nær hann yfir þrjú ár. Samkvæmt tilkynningu frá Mannvit er fyrirvari í samningnum um endanlega fjármögnun byggingarframkvæmda Thorsils. „Við hjá Mannviti erum afskaplega ánægð og stolt yfir gerð þessa samnings. Þetta er einn umfangsmesti samningur á sviði orkufreks iðnaðar sem íslenskt verkfræðifyrirtæki hefur gert fram til þessa, og við framkvæmd hans mun nýtast sú reynsla og tækniþekking sem orðið hefur til hér á landi við áratuga þjónustu við fyrirtæki á sviði orkufreks iðnaðar,“ sagði Sigurhjörtur Sigfússon, forstjóri Mannvits í tilkynningunni. „Eftir ítarlegan undirbúning og greiningu hefur Thorsil valið þá leið að byggja kísilver sitt með EPCM fyrirkomulagi. Með því næst fram talsvert hagræði sem Thorsil getur nýtt sér, einkum í ljósi þess að hjá fyrirtækinu, ráðgjöfum þess og tækniteymi er fyrir hendi mikil þekking á kísilmálmiðnaðinum. Ennfremur býr Mannvit yfir þekkingu og reynslu af því að stýra sambærilegum framkvæmdum. Thorsil hefur átt gott og farsælt samstarf við Mannvit við undirbúning verkefnisins og ríkir ánægja hjá fyrirtækinu með samninginn“ segir John Fenger, stjórnarformaður Thorsil.
Mest lesið Blekking við neytendur eða leið til að halda „þægilegri verðpunkti“? Neytendur Eiginkonan kvartar undan fíflagangi á morgnana Atvinnulíf Óttast að raforkuverð fjórfaldist án inngrips Neytendur Gjaldþrot olíuleitarfélags upp á 12 milljarða Viðskipti innlent Að ná til baka tilfinningunni: Það er gaman í vinnunni Atvinnulíf Réttur og öryggi leigjenda aukast á sunnudaginn Neytendur Pálmasynir selja IKEA-starfsemina í Eystrasaltslöndunum Viðskipti innlent Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Viðskipti erlent Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Viðskipti erlent Tapaði 1,2 milljörðum á fyrri hluta ársins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðinn hönnunarstjóri Aton Gjaldþrot olíuleitarfélags upp á 12 milljarða Pálmasynir selja IKEA-starfsemina í Eystrasaltslöndunum Costco innkallar makkarónukökur vegna salmonellu Tapaði 1,2 milljörðum á fyrri hluta ársins Innáskipting hjá Kviku „Prísáhrif“ í verðbólgutölum Verður meðal stærstu hluthafa og tekur við stjórnarformennsku Verð á matvöru lækkar í fyrsta sinn í þrjú ár Tilboð berast í eignir þrotabúsins: „Alltaf með símann opinn ef menn hafa áhuga“ Rekstrarhagnaður Sýnar nam 169 milljónum Hagnaður Skaga fyrstu sex mánuði ársins 273 milljónir Krefur Eimskip og Samskip um þrjá milljarða króna í skaðabætur Hreyfill gerir sátt við Samkeppniseftirlitið eftir kvörtun Hopp Lýsir ófremdarástandi í skilum ársreikninga Play fjölgar áfangastöðum í Portúgal Hundrað og fimmtíu missa vinnuna hjá Controlant Samstarfi um milljarðauppbyggingu slitið Skipaður deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar HR Kaupa allt hlutafé í Promennt Skúli í Subway boðar hópmálsókn gegn Sveini Andra Gervigreindin planaði sumarfrí fjölskyldunnar Gildistími tilboðsins framlengdur Kveður Marel og verður aðstoðarforstjóri Kapp Helga Hrund í hóp meðeiganda Maven Ráðinn forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans New York Times og BBC segja Íslendinga furða sig á stöðu gúrkunnar Vilja verða hverfisbarinn við Snorrabraut Segir DNA-tal ráðherra fráleita skýringu á verðbólgu Mata-systkinin gera yfirtökutilboð í fasteignafélagið Eik Sjá meira