Geri ekki upp á milli íþróttanna

Fréttablaðið Sport 30. janúar 2012 07:00
Marín Laufey hefur æft körfubolta í 6 ár og glímu í fjögur ár.
Marín Laufey hefur æft körfubolta í 6 ár og glímu í fjögur ár.
Kolbeinn Tumi Daðason skrifar:
Marín Laufey Davíðsdóttir úr Héraðssambandinu Skarphéðni sigraði í opnum flokki á Bikarmóti Íslands í glímu á laugardaginn. Hún hafði ekki langan tíma til að fagna sigrinum því síðar um daginn var hún í eldlínunni með Hamri sem sigraði Fjölni í Iceland Express-deild kvenna í körfubolta.

Dagurinn byrjaði reyndar ekkert sérstaklega fyrir Marín sem varð að sætta sig við 4. sætið í sínum þyngdarflokki, 65+ kg flokki. Hún sagðist ekki hafa mætt nógu ákveðin til leiks en það átti eftir að breytast þegar kom að opna flokknum síðar um daginn. Þar lagði hún alla andstæðinga sína að velli og sigraði Guðbjörtu Lóu Þorgrímsdóttur úr Glímufélagi Dalamanna í úrslitum með klofbragði.

„Vegna hæðarinnar á ég auðveldara með hábrögðin og klofbragðið hefur verið að nýtast mér mjög vel," sagði Marín sem er hávaxnari en stöllur hennar í glímunni. Í klofbragðinu er önnur löppin á milli fóta andstæðingsins, honum lyft upp og komið úr jafnvægi áður en hann lendir á gólfinu. Að úrslitaglímunni lokinni var brunað í Grafarvoginn þangað sem Hamarskonur sóttu Fjölni heim.

„Það kom mér á óvart hvað ég var lítið þreytt eftir glímuna. En um kvöldið var ég svo örmagna," sagði Marín sem skoraði 12 stig og tók 11 fráköst í 81-76 útisigri Hvergerðinga.

Marín, sem verður 17 ára í maí, segir íþróttirnar eiga ýmislegt sameiginlegt. Þannig nýtist sprengikrafturinn og snerpan í báðum íþróttum.

„Í glímunni skiptir maður allt í einu úr stíganda yfir í bragð þar sem þarf mikinn kraft. Hið sama er uppi á teningnum í körfunni þegar maður þarf að spretta upp völlinn eftir að hafa staðið vaktina í vörninni," segir Marín.

Sunnlendingurinn hefur í nógu að snúast. Auk þess að sinna glímunni og körfuboltanum er hún í hestamennsku á sumrin. Hún segist reyna að sinna öllu sem hún geri vel en körfuboltinn fái þó heilt á litið mesta athygli.

„Eftir því sem maður verður eldri eykst pressan að velja þá íþrótt sem maður vill einblína á. Ég er samt ekki komin á þann stað ennþá," segir Marín sem á greinilega framtíðina fyrir sér á fleiri sviðum en einu.

Pétur Eyþórsson úr Glímufélaginu Ármanni vann sigur í opnum flokki karla eftir úrslitaglímur við frænda sinn og Mývetninginn Bjarna Þór Gunnarsson.

Fleiri fréttir - Sport

Sport 19. maí. 2012 13:20

Jacky Pellerin ráðinn landsliðsþjálfari Íslands í sundi

Sundsamband Íslands hefur gengið frá ráðningu á Jacky Pellerin sem landsliðsþjálfara Íslan...  

Meira
Sport 19. maí. 2012 13:00

Ásdís, Ásgeir, Eygló, Ragna og Þorbjörg fengu öll flottan styrk

Tólf framúrskarandi íþróttamenn fengu í gær úthlutað afreksstyrk úr Samfélagssjóði Landsba...  

Meira
Sport 19. maí. 2012 10:00

Ragna: Í besta formi lífs míns

Ragna Ingólfsdóttir stefnir á að sýna sitt rétta andlit á Ólympíuleikunum í Lundúnum í sum...  

Meira
Sport 17. maí. 2012 20:00

Geta unnið Usain Bolt ilm með góðum árangri á Mótaröð FRÍ

Mótaröð FRÍ hefst á laugardaginn með keppni á Vormóti HSK á Selfossvelli en Mótaröð FRÍ er...  

Meira
Sport 14. maí. 2012 11:15

Ísland vann til bronsverðlauna á Norðurlandamótinu

Íslenska landsliðið í boccia vann til bronsverðlauna í flokki 1 án rennu á Norðurlandamóti...  

Meira
Sport 13. maí. 2012 09:00

Mikið áhorf á bardaga Mayweather og Cotto

Floyd Mayweather og Miguel Cotto mokuðu inn peningum á bardaga sínum um daginn. Alls keypt...  

Meira
Sport 12. maí. 2012 13:11

Auðunn nældi í silfur og setti heimsmet

Kraftlyftingamaðurinn Auðunn Jónsson vann í dag silfurverðlaun í réttstöðulyftu á Evrópumó...  

Meira
Sport 12. maí. 2012 12:59

Norðurlandamótið í boccia hafið

Norðurlandamót fatlaðra í boccia var sett í Laugardalshöll í morgun. Sveinn Áki Lúðvíksson...  

Meira
Sport 11. maí. 2012 23:45

Hundur Tebow heitir núna Bronx

Frægðarstjarna Tim Tebow í Bandaríkjunum skín enn mjög skært og hann er afar vinsælt umfjö...  

Meira
Sport 11. maí. 2012 17:15

Stóðu sig betur en þær dönsku og norsku - 24. sæti á EM í fimleikum

Íslenska kvennalandsliðið í fimleikum hefur lokið keppni á Evrópumeistaramótinu í áhaldafi...  

Meira
Sport 10. maí. 2012 23:00

Breska hnefaleikasambandið með hótanir vegna bardaga Haye og Chisora

Breska hnefaleikasambandið er brjálað yfir því að þeir David Haye og Dereck Chisora ætli a...  

Meira
Sport 10. maí. 2012 15:00

Enginn bardagi hjá Khan | Peterson féll á lyfjaprófi

Það verður ekkert af því að Amir Khan og Lamont Peterson mætist að nýju í hringnum þann 19...  

Meira
Sport 09. maí. 2012 14:30

Klitschko: Ótrúlegt að þessi bardagi fái að fara fram í Bretlandi

Hnefaleikakappinn Wladimir Klitschko er ekki mjög spenntur fyrir komandi bardaga á milli D...  

Meira
Sport 09. maí. 2012 12:43

Þormóður fer á ÓL í London

Það var staðfest í dag að júdókappinn Þormóður Árni Jónsson mun taka þátt á Ólympíuleikunu...  

Meira
Sport 09. maí. 2012 10:45

Usain Bolt náði besta tíma ársins | 9,82 sek.

Heims – og ólympíumethafinn í 100 metra hlaupi karla, Usain Bolt frá Jamaíku, virðis...  

Meira
Sport 09. maí. 2012 06:30

Biðin loks á enda

Bestu boccia-spilarar landsins verða á meðal þátttakenda á Norðurlandamótinu sem fer fram ...  

Meira
Sport 09. maí. 2012 10:30

Helgi Jónas og Guðríður í Boltanum á X-inu 977

Helgi Jónas Guðfinnsson þjálfari Íslandsmeistaraliðs Grindavíkur í körfuknattleik karla ve...  

Meira
Sport 08. maí. 2012 22:45

Michael Phelps hættir eftir Ólympíuleikana í London

Bandaríski sundmaðurinn Michael Phelps hefur gefið það út að hann ætli að hætta eftir Ólym...  

Meira
Sport 08. maí. 2012 12:15

Haye og Chisora ætla að slást á Upton Park

Það gleymist seint er hnefaleikaköppunum Dereck Chisora og David Haye laust saman á blaðam...  

Meira
Sport 06. maí. 2012 17:03

Einar Daði bætti sinn besta árangur á Ítalíu

Einar Daði Lárusson úr ÍR náði þriðja sæti á alþjóðlegu tugþrautarmóti á Ítalíu sem lauk n...  

Meira
Sport 06. maí. 2012 12:52

Mayweather heimsmeistari í léttmillivigt

Floyd Mayweather yngri, varð í gærnótt heimsmeistari í léttmillivigt en hann sigraði Migue...  

Meira
Sport 06. maí. 2012 11:30

Tennislandsliðið tapaði öllum leikjum sínum í Davis Cup

Ísland hefur lokið keppni í Davis Cup í tennis þetta árið en liðið tapaði fyrir Möltu, 2-1...  

Meira
Sport 06. maí. 2012 11:00

Einar Daði í fimmta sæti á Ítalíu

Einar Daði Lárusson, ÍR, er meðal keppenda á fyrsta tugþrautarmóti sumarseins sem fer fram...  

Meira
Sport 04. maí. 2012 14:45

Tíu íslenskar stelpur á leiðinni á EM í áhaldafimleikum í Brussel

Fimleikasamband Íslands sendir tíu keppendur á Evrópumeistaramót kvenna í áhaldafimleikum ...  

Meira
Sport 03. maí. 2012 14:00

Einar Daði keppir í tugþraut á Ítalíu um helgina

Einar Daði Lárusson, tugþrautarkappi úr ÍR, er á leiðinni til Ítalíu þar sem hann keppnir ...  

Meira
Sport 03. maí. 2012 10:15

Engar skýringar hafa fundist á dauðsfalli norska sundmannsins

Engar skýringar hafa fundist á skyndilegu dauðsfalli norska sundmannsins Alexanders Dale O...  

Meira
Sport 01. maí. 2012 11:21

Alexander Dale Oen einn besti sundmaður heims er látinn

Alexander Dale Oen, einn besti sundmaður heims, er látinn en hann var aðeins 26 ára gamall...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Geri ekki upp á milli íþróttanna