Gleðin verður í bænum um páskana 21. mars 2013 10:30
Þeir sem verða í bænum um páskana verða ekki sviknir. Í fyrsta sinn verður Páskagleði haldin í Listasafni Reykjavíkur á laugardeginum, 30. mars. Á tónleikunum koma fram listamenn sem allir eiga það sameiginlegt að spila tónlist sem einkennist af gleði og það á heldur betur við um páskana. Ásgeir Trausti fer þar fremstur í flokki en hann kemur fram ásamt hljómsveit sinni. Ásgeir kemur ferskur heim frá Bandaríkjunum þar sem hann er á tónleikaferð þessa dagana. Spilar í Boston, Texas, Toronto, San Francisco, New York og víðar. Í viðtalinu sem hægt er að horfa á í spilaranum hér fyrir ofan segir hann aðeins frá því sem er á döfinni næstu mánuði. Hann er búinn að semja við útgáfufyrirtækið One Little Indian og ætlar meðal annars að gefa plötuna sína, Dýrð í dauðaþögn, út með enskum texta út um allan heim. Platan seldist í 24 þúsundum eintaka hérlendis og vann til ferna verðlauna á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2012. Sísý Ey kemur einnig fram á Páskagleðinni en þessi upprennandi hljómsveit hefur heldur betur komið á óvart undanfarna mánuði. Lagið þeirra Ain't Got Nobody hefur verið að gera góða hluti á X-977 undanfarnar vikur. Þá komu þau skemmtilega á óvart á Sónar hátíðinni og fengu einróma lof gagnrýnenda. DJ Margeir, einn þekktasti og hæfileikaríkasti plötusnúður landsins, kemur einnig fram líkt og söngvarinn Daníel Ágúst. Þórunn Antonía kemur fram ásamt Berndsen og ætla þau að spila sína skemmtilegu danstónlist sem kemur öllum út á gólfið. Hér fyrir neðan má sjá viðtal við Þórunni um tónleikana. Hægt er að fylgjast nánar með undirbúningi tónleikanna og vinna miða á Facebook-síðu Páskagleðinnar. Hér á midi.is er hægt að kaupa miða. Þeir kosta 4.900 krónur og er 20 ára aldurstakmark. Á Twitter og Instagram eru gestir hátíðarinnar síðan hvattir til að merkja færslur sínar með #paskagledi.
Mest lesið Vægar viðreynslur en engir pervertar Lífið Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Lífið Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Lífið Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Lífið Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið F1: The Movie frumsýnd í Egilshöll – sjáðu myndirnar Lífið samstarf Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Lífið Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sjá meira