Glötuðu myndavélinni í Reykjavík - Internetið kom til bjargar 28. mars 2012 21:00 Unga parið frá Seattle. mynd/Facebook
Netheimar sýndu fram á mátt sinn í dag þegar ungt par frá Seattle í Bandaríkjunum endurheimti myndavél sem þau höfðu glatað á Íslandi. Atburðarásin hófst á Reykjavíkurflugvelli í síðustu viku. Ung kona fann þar stafræna myndavél á glámbekk og var eigandinn hvergi sjáanlegur. Hún hlóð ljósmyndunum inn á Facebook og biðlaði til notenda síðunnar um að deila myndaalbúminu. "Frænka mín fann myndavél á Reykjavíkurflugvelli fimmtudaginn 22. mars 2012," var ritað við myndaalbúmið. "Nýjustu myndirnar voru teknar í Reykjavík." Á myndavélinni voru einnig nokkrar ljósmyndir sem teknar höfðu verið í Bandaríkjunum. Íslenskir Facebook-notendur tóku höndum saman og dreifðu upplýsingunum um veraldarvefinn. Málið rataði jafnvel inn á heimasíður íslenskra fjölmiðla. Það voru síðan úrræðagóðir notendur vefsíðunnar Reddit sem tóku málin í sínar hendur. Einn notandi hóf spjallþráð þar sem hann auglýsti eftir eigendum ljósmyndanna. Þráðurinn fékk rúmlega 700 svör - þar á meðal fá einum sem kannaðist við stúlkuna á myndunum. Hún reyndist vera nágranni hans. Hann sendi henni skilaboð á Facebook og benti henni á albúmið á Facebook. Hún hefur nú haft samband við fólkið sem er með myndavélina.
Mest lesið Gríðarleg sprunga í Hagafelli vekur athygli Innlent Nafn Íslendingsins sem fannst látinn í Taílandi Innlent Kourani tekur upp íslenskt nafn Innlent Joe Biden dregur framboð sitt til baka Erlent Lenti í ofbeldissambandi með frönskum bíl Innlent Þekkir Kamölu Harris: „Ég held að hún eigi eftir að rassskella hann nokkrum sinnum“ Erlent „Ég skil ekki af hverju þær fagna því ekki bara“ Innlent Hollywood lofar Biden en Repúblikanar kalla eftir afsögn Erlent „Ég hef ekki aðgang að vatni neins staðar annars staðar“ Innlent Fínn hvítur salli gerir íbúum Laugarneshverfis lífið leitt Innlent Fleiri fréttir Trump hafi „misst kúlið“ í kjölfar ákvörðunar Bidens Þekkir Kamölu Harris: „Ég held að hún eigi eftir að rassskella hann nokkrum sinnum“ Sánchez boðaður til að bera vitni í spillingarmáli eiginkonunnar Flest smit í fyrsta sinn utan Afríkuríkjanna sunnan Sahara Nærtækast og praktískast að Harris leiði baráttuna gegn Trump „Þetta þýðir að Kamala Harris verður frambjóðandi Demókrata“ Viðvörun gefin út í Kerala á Indlandi vegna Nipah-veirunnar Saka Apple um fálæti þegar kemur að barnaníðsefni Par sem hugðist sigla frá Kanada til Asóreyja fannst látið Skipa Palestínumönnum að yfirgefa mannúðarsvæði Segja mörg kerfi komin í lag eftir bilunina á föstudag Hollywood lofar Biden en Repúblikanar kalla eftir afsögn Vegfarendur flúðu mikið eldhaf við bryggju í Hodeidah Kamala auðmjúk og allra augu á varaforsetaefnum Joe Biden dregur framboð sitt til baka Umhverfisaðgerðarsinni og Íslandsóvinur handtekinn á Grænlandi Mótmæla ferðamönnum á Majorka Óhemju öflugur Trump hafi sigurinn í hendi sér Kvótanum breytt en sér ekki fyrir endann á blóðugum mótmælum Sendir Biden háðsglósur á fyrsta kosningafundi eftir banatilræðið Þrír drepnir í árás Ísraela í Jemen Reyndist saklaus eftir að hafa setið inni í 43 ár fyrir morð Barni bjargað úr kviði látinnar móður Ljóst að annað áfall mun dynja yfir í framtíðinni Fyrrverandi þingkona skotin til bana Mögulega mistök eins forritara Dæmdur fyrir að myrða bróður sinn í útför Bandarískur blaðamaður fær sextán ára dóm í Rússlandi Landtaka Ísraela í Palestínu ólögmæt Bretar hefja aftur greiðslur til UNRWA Sjá meira