Erlent

Gosdrykkjaþamb eykur líkur á sykursýki

Jakob Bjarnar Grétarsson skrifar
Aðeins ein dós af sykruðum gosdrykk á dag eykur líkurnar á sykursýki um 22 prósent.
Aðeins ein dós af sykruðum gosdrykk á dag eykur líkurnar á sykursýki um 22 prósent.
Umfangsmikil rannsókn leiddi í ljós að aðeins ein lítil hefðbundin dós af gosdrykk á dag eykur líkur á að fólk þrói með sér sykursýki um 22 prósent, miðað við ef þeim er sleppt alfarið.

Neysla sykraðra drykkja hefur verið tengd við offitu, sem er velþekktur áhættuþáttur þegar sykursýki 2 er annars vegar en nú sýna rannsóknir að þyngdaraukning tengd ofneyslu gosdrykkja er ekki eini áhrifavaldurinn. Gosdrykkir hindra upptöku insulins í líkamanum og þarf ekki offita að koma til.

Rannsóknin tók til nærri 30 þúsund einstaklinga í átta Evrópulöndum og var gerð í kjölfar sambærilegrar rannsóknar í Bandaríkjunum, þar sem neysla gosdrykkja er algengari. Niðurstöðurnar eru samhljóða.

Nick Wareham, prófessor við Medcial Research Council´s, sem hafði yfirumsjón með rannsókninni, segir engan vafa leika á því að það er fylgni milli neyslu gosdrykkja, offitu og svo því að fólk þrói með sér sykursýki 2.

Nánar má lesa um þessa rannsókn hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×