Greiddi Deutsche Bank 35 milljarða Þórður Snær Júlíusson skrifar 4. júlí 2012 10:45 Þýski bankinn hefur víðtækar heimildir til að fara með málefni Peru ehf., komi til viðvarandi vanefnda á skuld félagsins við hann. Josef Ackermann var forstjóri Deutsche Bank fram til loka maí síðastliðins.
Pera ehf., dótturfélag Lýsingar, endurgreiddi þýska bankarisanum Deutsche Bank 35 milljarða króna af skuld sinni við hann um miðjan mars síðastliðinn. Engin ný lán voru tekin vegna greiðslunnar að sögn Magnúsar Scheving Thorsteinssonar, stjórnarformanns Lýsingar. Lýsing og dótturfélög töpuðu samtals 4,3 milljörðum króna á árinu 2011. Árið áður hafði fyrirtækið tapað 24 milljörðum króna. Eigið fé þess var samt sem áður 8,6 milljarðar króna um síðustu áramót. Í áritun endurskoðenda samstæðunnar kemur fram að margháttuð óvissa sé um afdrif ýmissa dómsmála sem rekin eru til að komast að lögmæti ýmissa lánasamninga sem Lýsing hefur gert. Þar segir að niðurstaða þeirra geti „haft veruleg áhrif á mat eigna, eigið fé og rekstrarhæfi félagsins". Á meðal þeirra mála sem tiltekin eru í ársreikningnum er hið svokallaða „Smákranamál" sem snýst um lögmæti gengistryggingar fjármögnunarleigusamnings. Í ársreikningnum segir að gera megi ráð fyrir því að það þurfi að færa niður eigið fé Lýsingar um fimm til sex milljarða tapist málið. Hæstiréttur sýknaði hins vegar Lýsingu af kröfum Smákrana í lok maí síðastliðins. Um var að ræða stærsta einstaka óvissuþátt í efnahagsreikningi Lýsingar. Pera, dótturfélag Lýsingar sem heldur utan um tugmilljarða lánafyrirgreiðslu frá Deutsche Bank, skuldaði 91,3 milljarða króna um síðustu áramót. Eigið fé félagsins var neikvætt um 21,9 milljarða króna en handbært fé þess var samt sem áður um 36 milljarðar króna. Það var notað til að greiða um 35 milljarða króna til Deutsche Bank þann 16. mars síðastliðinn. Magnús segir vissulega um hröðun á greiðslum að ræða. Greiðslan nú dragi hins vegar úr gjaldeyrisáhættu félagsins auk þess sem hún hafi jákvæð áhrif á eiginfjárhlutfall í samstæðureikningi Lýsingar. Pera er veðsett Deutsche Bank til tryggingar á skuldbindingum Lýsingarsamstæðunnar við bankann. Í ársreikningi Peru segir auk þess að Deutsche Bank hafi „víðtækar heimildir til að fara með málefni Peru ehf. komi til viðvarandi vanefnda sem ekki verður úr bætt". Lýsingarsamstæðan er í eigu Klakka ehf., sem áður hét Exista.- þsj
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Sjá meira