Greiði á móti greiða Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. ágúst 2013 10:00 Hörður Axel á ferðinni með íslenska landsliðinu.
Hörður Axel Vilhjálmsson heldur í dag utan til æfinga með spænska stórliðinu Bilbao Basket. Hörður er án félags eftir að hann keypti upp samning sinn við þýska úrvalsdeildarfélagið Mitteldeutscher BC í sumar. „Þetta er lið með mikla sögu og ég lít á það sem mikinn heiður að fá að æfa með þeim,“ segir Hörður Axel. Liðið hafnaði í sjötta sæti deildarinnar á síðustu leiktíð. Til samanburðar hafnaði CAI Zaragoza, lið Jóns Arnórs Stefánssonar, í áttunda sæti í deildarkeppninni. „Þeir eru að gera mér greiða og ég þeim á móti,“ segir Hörður Axel. Evrópukeppni landsliða er fram undan í september og því vantar marga fasta hlekki á æfingar liðsins næsta mánuðinn. Landsliðsmaðurinn fær því gott tækifæri til að halda sér í formi og sýna sig og sanna. „Ég fer út með því hugarfari að ég sé að fara að halda mér í formi þar til umboðsmaðurinn finnur eitthvað. Ef þeim líst vel á mig væri það bara bónus.“ Hörður Axel segir líklegast að hann endi hjá félagi í Þýskalandi þar sem hann sé orðinn nokkuð þekkt stærð. „Eins og staðan er í dag er maður að skoða það ásamt fleiri stöðum. Það er engin tilviljun að maður sé að fara til Spánar að æfa. Það væri auðvitað draumur,“ segir Fjölnismaðurinn uppaldi. Svo skemmtilega vill til að Bilbao Basket mætir CAI Zaragoza í fyrstu umferðinni þann 13. október.
Körfubolti Mest lesið Leik Frakklands á HM í kvöld gæti verið frestað Fótbolti Heimsmeistarinn ætlar að slá brautarmetið Sport Dagurinn hans Ounahi og Marokkó fyrst í átta liða úrslit Fótbolti Baulað á enska landsliðið Fótbolti ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri Íslenski boltinn „Ég kom fram og mamma var grátandi“ Sport Grænhöfðaeyjar grátlega nálægt því að senda heimsmeistarana heim Fótbolti Brautarmet féllu hvert á fætur öðru í Dyrafjallahlaupinu Sport Vill endurgera AI myndband sem sprengdi netið Fótbolti Fékk yfir tuttugu milljónir fylgjenda á mótinu Fótbolti Fleiri fréttir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Sjá meira