Grunur um myglusvepp á Vistheimili barna 13. mars 2013 19:01
Á Vistheimili barna sem er úrræði á vegum Reykjavíkurborgar eru börn í lengri eða skemmri tíma á vegum Barnaverndar Reykjavíkur. Þar er pláss fyrir sjö börn en stundum eru þau fleiri, sum koma beint af fæðingardeildinni en þau elstu eru um þrettán ára. Þau eiga það sammerkt að geta ekki búið hjá foreldrum sínum vegna ýmissa ástæðna svo sem vanrækslu og ofbeldis. Á neðri hæðinni fá svo foreldrar, sem þurfa mikla aðstoð við uppeldi barna sinna, að fá að dvelja tímabundið. Nýr forstöðumaður tók fyrir stuttu við starfseminni og brást hann við kvörtunum starfsmanna um að hugsanlega gæti verið myglusveppur í húsnæðinu og kallaði til sérfræðinga. Telur hann að mikil umræða í vetur um skaðsemi myglusveppa í húsum hafi vakið upp grunsemdir hjá starfsfólkinu. Málið er í rannsókn og er skýrslu að vænta á næstunni. Á vef fyrirtækisins sem framkvæmir skoðunina kemur fram að einkenni geta jafnvel verið afar mismunandi á milli fjölskyldumeðlima sem búa í sama húsnæði. Þá er algengt að þar sem myglusveppur er í vexti finni aðeins hluti af íbúum eða starfsmönnum til óþæginda. Halldóra Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur sagði í samtali við fréttamann í dag að allt verði gert til að tryggja heilsu barna og starfsmanna vistheimilisins og brugðist verði við niðurstöðum skýrslunnar. Vonast er til þess að málið sé ekki svo alvarlegt að loka þurfi heimilinu eða raska starfseminni, slíkt gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir börnin sem þar dvelja.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fleiri fréttir Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Sjá meira