Hin gamla góða íslenska Grýla hefur vakið mikla athygli um helgina. Ástæðan er sú að ljósmynd af málverki sem listamaðurinn Þrándur Þórarinsson málaði fyrir listasýningu árið 2009 fer eins og eldur í sinu um internetið. Ljósmyndin var sett á tenglavefinn reddit og hafa tæplega 620 þúsund manns séð hana á einum sólarhring. Í texta með myndinni á reddit segir að samkvæmt gamalli þjóðsögu éti Grýla börn ef þau haga sér ekki vel um jólin.
Þrándur segir í samtali við Vísi að málverkið hafi vakið nokkra athygli á sýningunni árið 2009. „Þetta var nú engin sérstök jólasýning en þetta var jólaverkið," segir Þrándur.
Þrándur hefur málað myndir um árabil en hann var meðal annars nemi hjá norska listamanninum Odd Nerdrum. „Já ég var í námi hjá honum í nokkur ár," segir Þrándur aðspurður út í málið.
Þrándur er með sýningu núna í gangi í Gamla Bíói og er hún opin til 1. desember.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sækir í dag Alþjóðlegan leiðtogafund, Global Leadership Summit, sem Viðskiptaskóli Lundúna, London Business School, og sjónvarpsstöðin CNN efna til.
Meira
Miðstjórn Framsóknarflokksins og flokksráð Sjálfstæðisflokksins hafa enn ekki verið boðuð til fundar til að ræða væntanlegt ríkisstjórnarsamstarf. Stjórnarmyndunarviðræður flokkanna halda áfram í dag.
Meira
Kennslanefnd kemur saman í dag vegna líkfundar í Kaldbaksvík á Ströndum nú um helgina. Notast verður við bein og tennur til að reyna að bera kennsl á viðkomandi.
Meira
Heimir Björn Janusarson, umsjónarmaður Hólavallakirkjugarðs, segir að þó nokkuð sé um að fólk láti setja duftker í garðinn mætti vera enn meira gert af því.
Meira
Kennslanefnd sem hefur það hlutverk að bera kennsl á óþekkt lík eða líkamsleifar sem finnast stefnir að því að koma saman sem fyrst, jafnvel á morgun til að gera frumrannsókn á líkinu sem fannst sjóre...
Meira
Fjórir ferðamenn sem komust í sjálfheldu í Fjallsárlóni fyrr í dag munu hafa verið rólegir, enda voru þau með borð og stóla á ísjakanum og gerðu sér ekki grein fyrir hættunni.
Meira
Tún bænda í Svarfaðardal og Skíðadal eru enn hulin snjó og halda þarf öllu lambfé heim við hús. Heyforði er naumur og dæmi eru um að bændur hafi þurft að kaupa hey fyrir tvær milljónir króna það sem a...
Meira
Kostnaður við snjómokstur hjá Dalvíkurbyggð í vetur er þrefalt meiri en í meðalári. Gríðarlegt fannfergi hefur verið á Norðurlandi í allan vetur og eru dæmi um að hús á Dalvík séu enn á kafi í snjó.
Meira
Skipting ráðuneyta er farin að taka á sig mynd í stjórnarmyndunarviðræðum Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Sjálfstæðisflokkurinn fær fjármála- og efnahagsráðuneyti og atvinnuvegaráðuneyti í nýrri rík...
Meira
Það er fréttaþulan skelegga á RÚV, María Sigrún Hilmarsdóttir, sem les upp stigin fyrir Íslands hönd þegar allir keppendurnir í Eurovision keppninni hafa lokið við að flytja framlög sín. Alls eru það ...
Meira