Guðbjartur segist ekki ganga gegn kjararáði 7. september 2012 08:26
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir að hann hafi ekki gengið gegn kjararáði við mjög umdeilda launahækkun hjá Birni Zoega forstjóra Landspítalans. Eins og kunnugt er hækkaði Guðbjartur laun forstjórans um 450 þúsund kr. í vikunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðherranum. Í heild hljóðar tilkynningin svo: „Laun Björns Zoega, forstjóra Landspítala eru ákveðin af kjararáði. Annars vegar tekur kjararáð ákvörðun um grunnlaun og hins vegar fjölda þóknunareininga til að mæta yfirvinnu og álagi sem starfinu fylgir. Með nýorðnum breytingum á launum forstjórans er ekki hróflað við úrskurði kjararáðs hvað það varðar. Í úrskurði kjararáðs um laun forstjóra Landspítala er tekið fram að sérstakar aðgerðir á sviði bæklunarskurðlækninga tilheyri ekki starfi hans sem forstjóra og heyri því ekki undir kjararáð. Fyrir læknastörfin er því greitt sérstaklega og var sá þáttur starfsins aukinn nú í september. Björn Zoega hefur frá því að hann tók við starfi forstjóra sinnt sérhæfðum skurðlækningum á Landspítala og gert nokkrar aðgerðir í hverri viku. Í sumar hefur þessi þáttur í starfi Björns aukist nokkuð. Að hluta til eru þetta aðgerðir sem aðrir læknar á Landspítala hafa ekki sinnt. Vert er að benda á að læknar sem eiga að baki langt og afar sérhæft nám verða að eiga þess kost að viðhalda þekkingu sinni og færni. Í tilfellum lækna sem sinna stjórnunarstöðum, líkt og Björn sem skipaður er til fimm ára, snýst þetta um möguleika hans á því að hverfa aftur að hefðbundnum læknisstörfum þegar hann lætur af störfum sem forstjóri. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir eðlilegt að meta í launum framlag og vinnu Björns við önnur störf en hefðbundin forstjórastörf. „Stjórnunarstörf forstjórans hverfa ekki meðan hann sinnir aðgerðum og móttöku sjúklinga. Þessi störf eru mikils virði fyrir sjúkrahúsið og sjúklingana en vinnudagur Björns verður að sama skapi lengri." Ráðherra segir óumdeilt að Björn hafi staðið sig vel í erfiðu starfi á erfiðum tímum. Honum hafi tekist að ná utan um rekstur Landspítala og aðlaga hann fjárlögum. „Fram hjá þessu verður ekki litið. Ég vissi að hart var sótt að Birni að taka að sér forstjórastarf hjá stórum og mikils metnum spítala erlendis. Það var mitt mat að óhagkvæmt væri og óskynsamlegt af minni hálfu að skipta um forstjóra við núverandi aðstæður ef hjá því yrði komist. Þess vegna bauð ég Birni að hækka laun hans en jafnframt var miðað við að hann yki vinnuframlag sitt við skurðlækningar á Landspítalanum. ""
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira