Innlent

Hallarbylting í Kópavogi - stuðningsmenn Gunnars og Ármanns tókust á

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Stuðningsmenn Gunnars I Birgissonar og Ármanns Kr. Ólafssonar tókust á á aðalfundi sjálfstæðismanna í Kópavogi í kvöld.
Stuðningsmenn Gunnars I Birgissonar og Ármanns Kr. Ólafssonar tókust á á aðalfundi sjálfstæðismanna í Kópavogi í kvöld.
Hallarbylting var gerð í sjálfstæðisfélaginu í Kópavogi í kvöld þegar aðalfundur þar var haldinn. Á fundinum var Þórður Ólafur Þórðarson kosinn formaður félagsins. Hann tekur við af Jóhanni Ísberg fráfarandi formanni. Í Kópavogi hafa tekist á tveir hópar manna.

Annar hópurinn fylgir Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarfulltrúa en hinn hópurinn er skipaður stuðningsmönnum Gunnars I Birgissonar, bæjarfulltrúa og fyrrverandi bæjarstjóra. Þórður Ólafur hefur verið félagi Ármanns um árabil. Á fundinn mættu 165 manns til að kjósa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×