Erlent

Handtöskur gróðrarstía fyrir bakteríur

Jakob Bjarnar skrifar
Bakteríurnar lifa góðu lífi í handtöskum kvenna.
Bakteríurnar lifa góðu lífi í handtöskum kvenna.
Ný rannsókn leiðir í ljós að handtöskur kvenna bera með sér fleiri bakteríur en meðalsóðalegt klósett.

Sá hlutur sem mestum óhreinindum safnar er handkrem sem er á við klósettsetu þegar bakteríurnar eru annars vegar og er varalitur litlu skárri. Leðurtöskur eru þær sem skapa bestu skilyrðin fyrir bakteríurnar að þrífast. Vísindamenn ráðleggja konum eindregið að þrífa töskur sínar og hendur reglulega með bakteríudrepandi efnum.

Rannsóknin var framkvæmd af Initial Washroom Hygiene.

Sjá nánar hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×