Berglind byrjaði í síðustu viku að selja fyrirburafatnað undir merkinu Tamiko, en mikil þörf hefur verið hérlendis, sem og víðar, á fötum í nægilega litlum stærðum til að passa á fyrirbura. Um tvö ár eru síðan Berglind hóf að hanna línuna og er hún búin að verja miklum tíma í öll smáatriði. "Fyrsta hálfa árið fór bara í að lesa mér til.
Upphaflega ætlaði ég bara að bæta örlítið við Baby Grappling-barnafatalínuna mína en eftir tveggja daga rannsóknir sá ég hversu mikil þörf var á fyrirburafatnaði svo ég ákvað að einbeita mér að honum. Áður en ég fór af stað í hönnunina hitti ég nokkra foreldra fyrirbura og fór á nýburagjörgæsluna til að fá álit þeirra sem þekktu til á því hvernig fötin þyrftu að vera," segir Berglind. "Ég er oft spurð að því hvort ég eigi fyrirbura sjálf og hafi þess vegna leiðst út í þetta, en það er ekki málið. Ég datt bara alveg óvart inn í þennan heim," bætir hún við, en í gegnum hönnun línunnar hefur Berglind meðal annars leiðst inn í styrktarfélagið Líf, sem er til handa kvennadeild Landspítalans, og situr þar í fjáröflunarnefnd.
Fyrirburar þurfa oftar en ekki að vera tengdir við vélar fyrstu daga lífs síns og taka allar flíkur Tamiko-línunnar mið af því. Lítið gat er á hlið þeirra fyrir snúrurnar sem börnin þurfa oft að vera tengd við og auk þess er allur fatnaðurinn mjög opnanlegur. Notuð er þynnri bómull en í venjuleg barnaföt og mikið er lagt upp úr því að hafa fötin sem þægilegust fyrir börnin.
"Allar myndir á flíkunum eru prentaðar á með mjúku prenti svo þær þola mikinn þvott og eru ekki með þessu harða og óþægilega bakspjaldi sem er oft á barnafötum," segir Berglind en allar myndirnar eru sérteiknaðar fyrir hana með það fyrir augum að þær endurspegli ást, kærleika og hlýju. Fötin koma í stærðum 38, 44 og 50 og er til sölu í Móðurást í Kópavogi og á Amazon í Bretlandi en reiknað er með að þau komi inn á ameríska Amazon síðar í mánuðinum.
