Lífið

Helgi Björns á Aldrei fór ég suður

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Helgi Björnsson.
Helgi Björnsson.
Aldrei fór ég suður, rokkhátíð alþýðunnar, fagnar tíu ára afmæli sínu og voru ný atriði kynnt á blaðamannafundi á Ísafirði í dag.

Hátíðin fer fram árlega um páskahelgina, á föstudaginn langa og á laugardeginum. Helgi Björnsson mun trylla lýðinn í ár ásamt stórsveit Vestfjarða en heimamaðurinn Guðmundur Magnús Kristjánsson, Muggi,  mun einnig spila með sveitinni. Þá spila Snorri Helgason og Kaleo einnig á hátíðinni.

Áður hafði verið greint frá því að Retro Stefson, Maus, Cell 7, Mammút, Grísalappalísa, Tilbury, DJ. flugvél og geimskip auk Glymskrattans myndu spila.

Styrktaraðilar hátíðarinnar undirrituðu samning á blaðamannafundi í flugstöðinni á Ísafirði í morgun.Vísir/Samúel
Styrktaraðilar hátíðarinnar eru Flugfélag Íslands, Landsbankinn, Orkusalan, Samskip og Orkubú Vestfjarða en stuðningurinn gerir að verkum að engan aðgangseyri þarf að greiða á hátíðina.

Tónlistin mun duna föstudaginn 18. apríl og laugardaginn 19. apríl frá klukkan 18 til 24 í Grænagarði, skemmu Gámaþjónustu Vestfjarða. Þá munu Kraumur-tónlistarsjóður og Aldrei fór ég suður bjóða upp á samræðugrundvöll tónlistarmanna og gesta um landslag tónlistar á Íslandi. Fer hann fram á milli 14 og 17 á föstudeginum.

Listamennirnir sem fram koma

Retro Stefson

Helgi Björnsson og stórsveit Vestfjarða

Maus

Mammút

Grísalappalísa

Tilbury

Hermigervill

Sigurvegarar Músíktilrauna 2014

Dj. Flugvél og geimskip

Glymskrattinn

Highlands

Cell7

Contalgen Funeral

Rhytmatic

Markús and the Diversion Sessions

Lón

Kött grá pjé

Þórunn Arna Kristjánsdóttir og búgíband Skúla Mennska

Dusty Miller

Sólstafir

Lína Langsokkur

Hemúllinn

Rúnar Þórisson

Kaleo

Snorri Helgason

Hátíðin fór fyrst fram um páskana 2004 og því um elleftu hátíðina að ræða.

Frá blaðamannafundinum á Ísafirði í morgun.Vísir/Samúel
Uppfært klukkan 14:00

Í fyrri frétt kom fram að Mugison myndi spila á hátíðinni. Hið rétta er að faðir hans, Muggi, mun taka lagið.


Tengdar fréttir

Þungarokk og þjóðlagapönk

Bræðurnir í Skálmöld, Snæbjörn og Baldur Ragnarssynir, sjá ekki að ein tónlistarstefna sé merkilegri en önnur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.