Lífið

Hera Björk vinsæl

Ellý Ármanns skrifar
Aðstandendur sönghátíðarinnar Vina del Mar hafa fengið Heru Björk til að syngja aftur í kvöld en það er ekki hluti af keppninni heldur vegna þess að lagið Because You Can hefur notið svo mikilla vinsælda í Chile á spænsku að þeir vilja fá hana til að syngja þá útgáfu í kvöld.

"WE DID IT:-D" skrifaði Hera Björk á þessa skemmtilegu Instragram mynd af henni með verðlaunagripinn, mávinn.
"Ég veit ekki hvort ég ræð við að læra allt lagið á spænsku fyrir kvöldið þó ég hafi getað komist í gengum það í studíói en ég mun allavega syngja viðlagið á spænsku og vonandi taka áhorfendur undir," segir Hera Björk spurð um flutninginn framundan.

Sönghátíðinni verður slitið í kvöld og mun Hera Björk leggja af stað heim til Íslands á morgun laugardag.

"Við fljúgum fyrst til Madríd, svo til London og svo heim. Þetta eru ekki nema 32 tímar," segir hún hlæjandi eins og henni er von og vísa.


Tengdar fréttir

"Búin að upplifa nýja tilfinningu gagnvart mávum"

"Maður veit aldrei hvernig svona hlutir fara. Ég fann mjög fljótlega þegar ég steig á svið að fólk var að taka mér vel og ég fékk flottar einkunnir frá dómnefndinni. Það gaf í skyn að við værum að fara í toppslaginn," segir söngkonan Hera Björk sem stóð uppi sem sigurvegari með lag ársins í Vina del Mar keppninni.

Hera Björk vann söngvakeppnina í Chile

Hera Björk vann verðlaunin lag ársins í Vina del Mar söngvakeppninni í Chile. En það eru stærstu verðlaun keppninnar. Fékk Hera 35.000 dollara í sinn hlut auk veglegrar styttu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×