Bíó og sjónvarp

Hilmir Snær leikur harðan nagla

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir sýnir hér fyrst allra miðla fyrsta plakatið af sex fyrir kvikmyndina Borgríki II. Á plakatinu er leikarinn Hilmir Snær Guðnason, ansi hreint reffilegur.

Hilmir Snær leikur Ívar, yfirmann sérsveitarinnar. Harður nagli, laganna vörður í húð og hár og líður ekkert kjaftæði.

Borgríki II - Blóð hraustra manna er sjálfstætt framhald  kvikmyndarinnar Borgríki sem kom út síðla árs 2011. Í helstu hlutverkum eru Darri Ingólfsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Sigurður Sigurjónsson, Zlatko Krickic og fyrrnefndur Hilmir Snær Guðnason.

Hér fyrir neðan má sjá sýnishorn úr myndinni en hún verður frumsýnd í október. Vísir frumsýnar síðan nýja stiklu næsta þriðjudag.

Borgríki II - Teaser #1 from Olaf de Fleur on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.