Höfðu ekki leyfi til að sýna Hringadróttinssögu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 29. desember 2014 12:05 Ólöf Lena Inaba Árnadóttir stóð fyrir maraþonsýningu á Hringadróttinssögu í Bíó Paradís í gær. Vísir
Ekki hafði fengist leyfi frá rétthöfum fyrir maraþonsýningu á Hringadróttinssögu sem Ólöf Lena Inaba Árnadóttir stóð fyrir í Bíó Paradís í gær. Myndform hefur sýningarrétt á myndunum hér á landi og segir Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, að málið verði leyst í samstarfi við Bíó Paradís. „Þetta er auðvitað höfundarréttarbrot en mér skilst að þetta sé í og með misskilningur. Við höfum í gegnum tíðina verið mjög sveigjanlegir þegar kemur að svona sýningum og lítið mál hefur verið að fá leyfi fyrir þeim. Ég held að þetta hafi verið hugsunarleysi, stelpan sem stendur fyrir sýningunni er auðvitað bara 14 ára, en menn sem eru í bíórekstri eiga auðvitað að vita betur,“ segir Gunnar. Hann segir að ekki verði farið með málið í nein leiðindi; það verði einfaldlega samið við Bíó Paradís um greiðslu fyrir sýningunni á myndunum. Gunnar segir verðið samningsatriði í hvert sinn. Ása Baldursdóttir, dagskrárstjóri Bíó Paradísar, segir að um mistök hafi verið að ræða hjá starfsmönnum kvikmyndahússins. Hún segir að Bíó Paradís muni fara að óskum rétthafans varðandi greiðslu fyrir sýningunni enda vilji bíóið halda áfram góðu samstarfi við Myndform.
Tengdar fréttir Stendur fyrir maraþonsýningu á Hringadróttinssögu Aðeins fimmtán af fjörutíu sóttu miðana sína. 28. desember 2014 13:35 Mest lesið Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Alvarlegt bílslys í Öræfum Innlent Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Erlent Margt bendi til þess að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Grímuskylda á Landspítalanum Innlent Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Innlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Erlent Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Fleiri fréttir Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Sjá meira
Stendur fyrir maraþonsýningu á Hringadróttinssögu Aðeins fimmtán af fjörutíu sóttu miðana sína. 28. desember 2014 13:35