Erlent

Hornið kom út um munninn

Óli Tynes skrifar
Julio og nautið.
Julio og nautið. Mynd/AP

Miðað við þessa mynd er það eins og spænski nautabaninn Julio Aparicio hafi upplifað dálítið kraftaverk.

Hann er á batavegi eftir umfangsmikla skurðaðgerð eftir að nautið sem hann var að berjast við á Las Ventas leikvanginum í Madrid stangaði hann undir hökuna.

Eins og sjá má gekk hornið svo langt inn í hann að það kom út um munninn. Nautið var ekki jafn heppið, það lét lífið á blóðvellinum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×