Íhuga að kaupa Grímsstaði með láni frá Nubo og leigja honum Þorbjörn Þórðarson skrifar 8. febrúar 2012 18:52
Sveitarfélagið Norðurþing íhugar nú að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum með láni frá Huang Nubo og leigja honum hana síðan. Sveitarfélagið myndi þá eiga jörðina á móti ríkinu sem á fjórðungshlut. Bæjarstjóri Norðurþings er nú staddur í Peking til að hitta Nubo. Kaupsamningur milli kínverska fjárfestisins Huang Nubo og landeigenda Grímsstaða á Fjöllum hljóðaði upp á 800 milljónir króna fyrir 72 prósenta hlut í jörðinni. Ríkið á 25 prósent og þá eru 3 prósent í eigu einstaklinga á svæðinu. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, synjaði sem kunnugt er kaupunum staðfestingar en borgarar ríkja utan EES þurfa slíkt samþykki á grundvelli laga um eignarrétt og afnotarétt fasteigna. Í kjölfarið sótti Nubo um undanþágu hjá iðnaðarráðherra á grundvelli nýrra laga um ívilnanir vegna nýfjárfestinga vegna langtímaleigu á Grímsstöðum á Fjöllum í því skyni að reisa þar lúxushótel, golfvöll og fleira. Ekki er búið að taka ákvörðun um umóknina í iðnaðarráðuneytinu, en nefndin sem fjallar um hana fundaði á fimmtudag í síðustu viku og framhaldi af því var ritað bréf til Nubos þar sem óskað var eftir frekari upplýsingum. Halldór Jóhannsson, talsmaður Nubos hér á landi, segir að ef svar ráðuneytisins verði á endanum neikvætt séu áformin í raun fokin út í veður og vind. Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, er staddur í Kína, en hann fór þangað aðfaranótt mánudags og átti að fara til Peking í dag til að funda með Huang Nubo. Eftir því sem fréttastofa kemst næst ganga áformin varðandi Grímssrtaði út á að Nubo láni sveitarfélaginu Norðurþingi fyrir kaupunum á jörðinni, leigi hana síðan af sveitarfélaginu og leigutekjurnar fari síðan í að greiða upp lánið. Þá er líka rætt um að leigan verði staðgreidd nokkur ár fram í tímann. Þetta er þó allt háð því að iðnaðarráðuneytið gefi grænt ljós, eins og áður segir. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Facebook lá niðri Erlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Fleiri fréttir Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld Sjá meira