Viðskipti innlent

Ísland meðal þjóða í mestri hættu vegna evrusvæðisins

Ísland er í hópi þeirra tíu þjóða sem eru í mestri efnahagslegri áhættu vegna vandamálanna á evrusvæðinu.

Þetta kemur fram í nýrri úttekt sem gerð var af ráðgjafarfyrirtækinu Maplecroft. Bretland er á toppi listans yfir þær 18 þjóðir sem taldar eru í mestri áhættu vegna evrusvæðisins. Skýrist það einkum af stærð fjármálamarkaðarins í London og tengsla hans við evrusvæðið. Í næstu sætum á eftir Bretlandi eru svo Pólland, Ungverjaland og Tékkland.

Ísland er í níunda sæti listans rétt á eftir Svíþjóð sem er í áttunda sæti. Hvað Ísland varðar eru áhættan einkum fólgin í því að utanríkisverslun landsins við lönd innan Evrópusambandsins (ESB) er mjög mikil. Þannig er útflutningur frá Íslandi til ESB 78% og innflutningur yfir 46% af utanríkisverslun Íslands í heild. Samanlagt nema þessi viðskipti yfir 30% af landsframleiðslu landsins.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×