Innlent

Ísland úr umsóknarferli yfir í viðræðuferli

Frá Brussel
Frá Brussel
Leiðtogaráð Evrópusambandsins samþykkti í dag að hefja viðræður við Ísland um aðild að sambandinu. Með ákvörðuninni færist Ísland úr umsóknarferli yfir í viðræðuferli. Ákvörðunin kemur í framhaldi af jákvæðri niðurstöðu framkvæmdastjórnar ESB í áliti hennar um aðildarumsókn Íslands frá því í lok febrúar á þessu ári, segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Í niðurstöðum leiðtogafundar ESB í dag kemur meðal annars skýrt fram að Ísland uppfylli hin pólitísku skilyrði aðildar sem sett voru fram í ályktun leiðtogaráðsins í Kaupmannahöfn árið 1993. Einnig kemur fram að viðræður muni miða að því með hvaða hætti Ísland taki upp regluverk Evrópusambandsins, uppfylli fyrirliggjandi skuldbindingar skv. ábendingum ESA og í samræmi við EES-samninginn, og bregðist við athugasemdum sem gerðar voru í áliti framkvæmdastjórnar ESB. Leiðtogaráðið fagnar staðfestu íslenskra stjórnvalda í því tilliti og tekur fram að viðræðuferlið muni byggjast á eigin verðleikum Íslands sem umsóknarríkis og að framvinda viðræðna fari eftir því hvernig Íslandi tekst að mæta þeim skilyrðum sem sett verða í samningsrammanum.

Með ákvörðun leiðtogaráðsins færist Ísland úr umsóknarferli yfir í viðræðuferli. ESB mun á næstu vikum vinna að samningsramma um skipulag fyrirhugaðra viðræðna sem öll aðildarríkin þurfa að samþykkja. Því næst fer fram ríkjaráðstefna þar sem Ísland og ESB munu formlega hleypa viðræðum af stokkunum.

Að henni lokinni hefst svokölluð rýnivinna þar sem löggjöf Íslands og löggjöf ESB verður borin saman í því skyni að finna út hvar ber á milli og hvað þarf að semja um. Þegar rýnivinnu er lokið, þegar líður á næsta ár, hefjast svo eiginlegar viðræður. Í samræmi við lýðræðislega ákvörðun meirihluta Alþingis um að fela ríkisstjórn að sækja um aðild að ESB, mun aðildarsamningur við ESB verða borinn undir íslensku þjóðina.

Samninganefnd Íslands mun halda áfram undirbúningi fyrirhugaðra aðildarviðræðna í nánu samráði við Alþingi og hina fjölmörgu hagsmunaðila og félagasamtök sem koma að umsóknarferlinu hér innanlands. Auk undirbúnings rýnivinnu mun samninganefndin og þeir 10 samningahópar sem starfa undir henni vinna að mótun samningsafstöðu Íslands í einstökum köflum. Þegar liggur fyrir að 22 af þeim 33 köflum Evrópulöggjafarinnar sem semja þarf um hafa þegar að mestu verið teknir upp í íslenska löggjöf í gegnum þátttökuna í Evrópska Efnahagssvæðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×