Viðskipti innlent

Íslendingar selja farþegum skemmtiferðaskipa mat fyrir 300 milljónir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mögulegar árlegar tekjur af sölu matvæla til skemmtiferðaskipa sem koma hingað til lands geta numið rúmlega 3 milljörðum króna, en áætla má að núverandi hlutdeild íslenskra fyrirtækja í þeirri veltu sé rétt tæplega 10% eða 300 milljónir. Þetta miðast við tölur frá árinu 2010, en þá komu um 160 þúsund farþegar með 219 skemmtiferðaskpum. Haukur Már Gestsson, hagfræðingur hjá Íslenska sjávarklasanum, bendir á að komum skemmtiferðaskipa til Íslands hafi fjölgað og því séu tölurnar jafnvel enn hærri í ár.

Árið í ár er metár í fjölda ferðamanna með skemmtiferðaskipum til Reykjavíkur, en áætlað er að í ár komi 90 þúsund manns í höfn. Nú þegar hefur verið bókað fyrir 100 þúsund farþega á næsta ári og enn á eftir að bæta við. Haukur telur því veruleg sóknarfæri þarna á ferðinni. Það er sama hvort maður talar við menn frá Faxaflóahöfnum eða Hafnarfjarðahöfn, eða hvar það er. Alls staðar er sú tilfinning að þetta sé að aukast og muni bara aukast,“ segir Haukur.

Hann segir þörf á góðri markaðssetningu til að auka hlut íslenskra fyrirtækja í kökunni. „Menn þurfa bara að koma sér saman um að herja á þessi fyrirtæki, ekki bíða eftir því að geta tekið við pöntunum heldur vera sýnilegir,“ segir Haukur. Þá segir hann að menn verði að vinna saman að markaðssetningu í stað þess að vera að bítast um litla hluta af kökunni hver í sínu horni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×