Íslenskur fjárfestahópur vill hlut Alterra í HS Orku 30. júní 2012 05:45 Geysir Green Energy seldi Alterra, sem þá hét Magma, hlut sinn í HS Orku í maí 2010. Þá var Alexander K. Guðmundsson (annar frá hægri) forstjóri Geysis. Hann leiðir nú hóp sem vill kaupa meirihluta í fyrirtækinu af Ross Beaty (í miðjunni). fréttablaðið/GVA
Modum Energy og sjóðir í rekstri Stefnis, sjóðastýringafyrirtækis í eigu Arion banka, hafa gert kauptilboð í 66,6 prósenta hlut Alterra Power, sem hét áður Magma Energy, í HS Orku. Tilboðið er lagt fram í samstarfi við Arion banka sem verður þó ekki beinn eignaraðili gangi áformin upp. Til stendur að fjölga í hluthafahópnum gangi samningsviðræður vel og stefnt er að því að skrá HS Orku á hlutabréfamarkað ef af kaupunum verður. Unnið hefur verið að málinu frá því í janúar og búið er að undirrita viljayfirlýsingu við Alterra um að báðir aðilar hafi áhuga á að ganga frá sölunni. Umfang tilboðsins fæst ekki uppgefið en stefnt er að því að ljúka kaupunum í síðasta lagi í haust. Miðað við það gengi sem var á síðustu viðskiptum með hluti í HS Orku er virði hlutarins um 28 milljarðar króna. Modum Energy var stofnað í febrúar síðastliðnum. Fyrir félaginu fara Alexander K. Guðmundsson og Eldur Ólafsson. Alexander var forstjóri Geysis Green Energy, sem var um nokkurt skeið stærsti eigandi HS Orku, þar til í janúar 2012. Að sögn hans hefur verið unnið að hugmyndinni um að kaupa hlut Alterra síðan þá. „Hugmyndin fæðist á Íslandi. Við höfum verið að vinna að þessu nokkuð lengi. Þetta er upphafið að ákveðinni vegferð en það er mikil vinna eftir.“ Kaup Alterra á HS Orku voru á sínum tíma afar umdeild. Meðal annars var sett í gang ferli, undir forystu Steingríms J. Sigfússonar þáverandi fjármálaráðherra, til að reyna að tryggja að meirihluti fyrirtækisins héldist í opinberri eigu. Það ferli skilaði þó engri niðurstöðu og Alterra eignaðist það nánast að fullu. Fyrir rúmu ári var síðan tilkynnt að Jarðvarmi slhf., félag fjórtán lífeyrissjóða, hefði keypt 25 prósenta hlut í HS Orku af Alterra fyrir 8,1 milljarð króna. Kaupþing voru gerð á genginu 4,63 krónur á hlut, sem var nokkuð undir áætluðu matsvirði HS Orku. Ástæðan var sú að Alterra hafði greitt hluta fjárfestingar sinnar í HS Orku með aflandskrónum og naut Jarðvarmi þess afsláttar í kaupunum. Auk þess fékk Jarðvarmi kauprétt á nýjum hlutum á genginu 5,35 krónur á hlut. Þann rétt nýtti félagið sér í febrúar síðastliðnum. Jarðvarmi á nú 33,4 prósenta hlut og hefur greitt samtals 12,8 milljarða króna fyrir. Miðað við gengið á síðustu viðskiptum með bréf í HS Orku er virði þess hlutar, sem Modus Energy og Stefnir ætla sér að kaupa, því 27,9 milljarðar króna. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur stjórn Jarðvarma verið gerð grein fyrir að tilboðið hefði verið á leiðinni. Hún er jákvæð gagnvart því. Jarðvarmi hefur ítrekað lýst því yfir að vilji sé til þess hjá eigendum félagsins að skrá HS Orku á markað. Í tilkynningu frá Modus-hópnum sem send var út í gær kom fram sami vilji til að skrá HS Orku „í kauphöll á næstu misserum og mun almenningi þannig gefast kostur á að eignast hluti í HS Orku“. thordur@frettabladid.is
Mest lesið Keypti hjónin út og á Extraloppuna nú ein Viðskipti innlent Segja áherslur Trump-stjórnarinnar fela í sér tækifæri fyrir Icelandair Viðskipti innlent Að hringja sig inn veik á mánudögum Atvinnulíf Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Samstarf Allar auglýsingar Super Bowl á sama stað Viðskipti erlent Musk og félagar gerðu 97,4 milljarða dala tilboð í OpenAI Viðskipti erlent Fermingarmyndin ekki til útflutnings Atvinnulíf Beina spjótum sínum að bandarískum tæknifyrirtækjum Viðskipti erlent Nammið rýkur áfram upp í verði Neytendur Skipt um mann í brúnni hjá Frumherja Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja áherslur Trump-stjórnarinnar fela í sér tækifæri fyrir Icelandair Skipt um mann í brúnni hjá Frumherja Arion banki og Alda hljóta Menntaverðlaun atvinnulífsins Björn Brynjúlfur selur Moodup Katrín Ýr frá JBT Marel til Heilsu Bein útsending: Menntadagur atvinnulífsins Það besta og skrýtnasta í dýrasta auglýsingaplássi veraldar Tólf hlutu Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2025 Bein útsending: Stjórnendaverðlaun Stjórnvísi afhent Keypti hjónin út og á Extraloppuna nú ein Lokatilraun til að bjarga loðnuvertíð Varar við glötuðum tækifærum í kringum almyrkvann á næsta ári Þau hlutu UT-verðlaunin í ár Greiða Póstinum 618 milljónir fyrir alþjónustu Geta breytt sér í kúreka eða kappaksturshetju með gervigreind Landsbankinn lækkar vexti Sýn sendir frá sér afkomuviðvörun Flýta sér hægt í leit að dagskrárstjóra Bein útsending: UTmessan Rauð vaxtaviðvörun í á þriðja ár Kópavogur sýknaður af milljarðakröfum Björgólfur Thor og félagar verða stærstu eigendur Heima Fjárfestar tóku vel í uppgjör Festi Fetar í fótspor Herra hnetusmjörs „Held þeir vilji hafa þetta á Samfylkingarpóstinum“ Öllum skerðingum aflétt Arion tilkynnir um lækkun vaxta Mayoral til Íslands Rafn Heiðar ráðinn veitingastjóri Olís Seldu hugvitið og ríkissjóður stórgræðir Sjá meira