Jón Ásgeir hafnar ábyrgð á tapi lífeyrissjóðanna 5. febrúar 2012 12:04 Jón Ásgeir hafnar því að bera ábyrgð á tapi lífeyrissjóðanna á falli Glitnis.
Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrum aðaleigandi Baugs, hafnar því að bera ábyrgð á tapi lífeyrissjóðanna á falli Glitnis. Honum finnst hins vegar miður að sjóðirnir hafi tapað á Baugi. Lífeyrissjóðirnir töpuðu samtals 77 milljörðum króna á félögum tengdum Baugi. Rannsóknarskýrsla lífeyrissjóða listar upp þau fyrirtæki tengdum Baugi sem lífeyrissjóðirnir höfðu fjárfest í fram að hruni, þar á meðal eru Glitnir, Eik fasteignafélag, Vodafone, Íslensk afþreying, Teymi, Landic Property, Mosaic Fashions, Stoðir og 365, svo nokkur séu nefnd. Samanlagt tap lífeyrissjóðanna á fyrirtækjum tengdum Baugi voru 77.182 milljónir króna - þar af eru rúmur 47 og hálfur milljarður sem töpuðust á hlutabréfum og skuldabréfum í Glitni. Jón Ásgeir sendi frá sér yfirlýsingu nú skömmu fyrir hádegi og segir að tvö fyrirtæki sem voru undir hans yfirráðum hafi fengið lánsfé frá lífeyrissjóðunum, Hagar og Baugur. Hagar hafi greitt allar skuldir við sjóðina með vöxtum. Lán til Baugs hafi verið upp á 4,8 milljarða, orðrétt segir Jón Ásgeir: Mér finnst miður að lífeyrissjóðir hafi tapað fjármunum á Baugi Group, tilvitnun lýkur og tekur fram að skiptum á þrotabúinu sé eki lokið. Þá hafnar hann því alfarið að bera ábyrgð á tapi lífeyrissjóðanna á Glitni, lífeyrissjóðirnir hafi fjárfest í Glitni frá stofnun bankans áður en hann varð stór eigandi. Hann fellst ekki á að hægt sé að kenna sér eða Baugi um 47 milljarða tap sjóðanna á Glitni sem sé meðal annars vegna fjárfestinga fyrir árið 2007. Hægt er að nálgast yfirlýsinguna hér.
Mest lesið „Þeir sem búa í glerhúsi ættu að spara grjótkastið“ Innlent Átta ára fangelsi í sögulegu fíkniefnamáli Innlent Skólaþorpið í Laugardal: Syðri innkeyrslunni lokað og 256 bílastæði fjarlægð Innlent „Hún er albesti vinur minn“ Innlent Hvað vitum við um Leó páfa? Erlent Einn rólegur, annar afar ósáttur Innlent „Svik við lögreglumannastéttina“ og slái hann „mjög illa“ Innlent Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök Erlent Lá alblóðugur á gangstétt eftir að hafa komist undan árás æskuvinarins Innlent Loftslagsmál sitji á hakanum vegna stríða og heimsfaraldurs Innlent Fleiri fréttir „Hún er albesti vinur minn“ Loftslagsmál sitji á hakanum vegna stríða og heimsfaraldurs „Þeir sem búa í glerhúsi ættu að spara grjótkastið“ „Svik við lögreglumannastéttina“ og slái hann „mjög illa“ Átta ára fangelsi í sögulegu fíkniefnamáli Einn rólegur, annar afar ósáttur Skólaþorpið í Laugardal: Syðri innkeyrslunni lokað og 256 bílastæði fjarlægð „Gott að eldast“ í tuttugu og tveimur sveitarfélögum Uppsagnir á Þjóðminjasafninu Lítil Björg dró stóra Hildi í land Nýr páfi, svik við almenning og loðnasti starfsmaður Rimaskóla Lá alblóðugur á gangstétt eftir að hafa komist undan árás æskuvinarins Þungt hugsi og í áfalli Telja Jón Þór hafa tryllst af afbrýðissemi Viðsnúningur eftir krappan dans Vantraust á framkvæmdastjóra Félagsbústaða talið alvarlegt Rúmir níu milljarðar runnið úr ríkissjóði til flokkanna Ólafur Þór undrandi og dómsmálaráðherra talar um svik við þjóðina Heilsa, vellíðan, friður, réttlæti og jöfnuður mikilvægustu markmiðin Svik við almenning, kerfið og samstarfsfólk Ein breyting á stjórn sem leggja á niður „Rotnir starfshættir og ríkisrekið ofbeldi gegn borgurunum“ Miklum meirihluta finnst auglýsingar SFS slæmar Hafdís hafi bara umlað „hann reyndi að drepa mig“ Annar snarpur skjálfti í Ljósufjallakerfi Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum „Þetta er mál sem varðar ekki einungis kaþólsku kirkjuna“ „Íslenskir bankar eru með belti, axlabönd, sikrisnælur og hjálma“ „Þetta er svona eitraður kokteill” Til skoðunar hvort hægt sé að innheimta leigu beint af tekjum Sjá meira