Lífið

Jón Gnarr og Baltasar gera sjónvarpsseríu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Jón Gnarr birtir mynd af sér og Baltasar á Facebook nú fyrir stundu.
Jón Gnarr birtir mynd af sér og Baltasar á Facebook nú fyrir stundu.
Jón Gnarr og Baltasar Kormákur hafa ákveðið að leiða saman hesta sína í nýrri sjónvarpsþáttaseríu,“ segir Magnús Viðar Sigurðsson, framkvæmdastjóri RVK Studios. Jón Gnarr birti mynd af sér og Baltasar á Facebook-síðu sinni fyrir stundu og tilkynnti fréttirnar. 

„Það er búið að ákveða hvert konseptið í þáttunum á að vera en ég get ekki gefið það út á þessari stundu,“ bætir Magnús Viðar við. Í ljósi ferils Jóns sem grínista má leiða líkum að því að þættirnir verði í spaugilegri kantinum en Magnús Viðar getur ekki staðfest það.

Hann segir þættina enn vera á þróunarstigi og getur ekki sagt til um hvenær þeir verða sýndir.

„Það er ekki langt síðan við fórum að vinna í þessu. Það getur tekið níu til fimmtán mánuði að þróa seríu. Stundum tekur það styttri tíma og stundum lengri tíma. Ég get ekki sagt þér hvenær serían verður sýnd,“ segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.