Íslenski boltinn

Jón Guðni klárar tímabilið með Fram

Hans Steinar Bjarnason skrifar

Jón Guðni Fjóluson, leikmaður Fram, mun að öllum líkindum klára leiktíðina með liðinu í Pepsí-deildinni samkvæmt heimildum íþróttadeildar.

Ekki náðist samkomulag um kaupverð milli Fram og AEK Aþenu að svo stöddu, en liðin munu halda viðræðum áfram eftir tímabilið.

PSV Eindhoven hefur ásamt fleiri liðum sýnt Jóni Guðna áhuga en engar ákvarðanir hafa verið teknar í framhaldi af viðræðum milli félaganna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×