Íslenski boltinn

Jón Guðni til PSV

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jón Guðni skorar hér gegn Val í sumar.
Jón Guðni skorar hér gegn Val í sumar.

Unglingalandsliðsmaðurinn og Framarinn Jón Guðni Fjóluson hélt til Hollands í morgun þar sem hann mun skoða aðstæður hjá hollenska stórliðinu PSV Eindhoven næstu daga.

Þessi ungi Framari hefur slegið í gegn í Pepsi-deildinni sem og með Fram og vakið athygli liða á sér. Nú síðast spilaði hann frábærlega með íslenska U-21 árs liðinu gegn Þjóðverjum.

Þarf því ekki að undra að stórlið á borð við PSV skuli sýna honum áhuga.

Fari svo að Jón Guðni endi hjá PSV verður hann fyrsti Íslendingurinn í herbúðum félagsins síðan Eiður Smári Guðjohnsen spilaði með félaginu er hann byrjaði sinn atvinnumannaferil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×