Sló heimsmet á Akureyri
Japaninn Ryoyu Kobayashi sló í dag heimsmet í skíðastökki þegar hann stökk 291 metra í Hlíðarfjalli á Akureyri. Metið hefur enn ekki verið staðfest en fyrra skráða met nemur 253 metrum. Stökkpallurinn var sérstaklega smíðaður fyrir verkefnið en Kobayashi hefur dvalið á Akureyri síðustu vikur og beðið eftir rétta tímapunktinum til að reyna við metið.