Innlent

Kanínan orðin hluti af villtri fánu Íslands

í elliðaárdal Stofni kanínu fækkar mikið yfir veturinn en viðkoman er gríðarleg yfir sumarið. Kvendýrið getur gotið nokkrum sinnum á ári, 3 til 5 ungum í senn, og verður kynþroska 6 mánaða gamalt. Stofninn getur því margfaldast á stuttum tíma.fréttablaðið/pjetur
í elliðaárdal Stofni kanínu fækkar mikið yfir veturinn en viðkoman er gríðarleg yfir sumarið. Kvendýrið getur gotið nokkrum sinnum á ári, 3 til 5 ungum í senn, og verður kynþroska 6 mánaða gamalt. Stofninn getur því margfaldast á stuttum tíma.fréttablaðið/pjetur
Rétt er að líta svo á að kanínur hafi unnið sér þegnrétt sem villt tegund í fánu Íslands, að mati sérfræðings hjá Náttúrufræðistofnun. Talið er líklegt, í ljósi hlýnandi veðurfars hér á landi og mikillar aðlögunarhæfni tegundarinnar, að hún auki útbreiðslu sína og fjölgi hratt að óbreyttu. Margir líta á kanínu sem meindýr og að henni beri að halda í skefjum.

Ævar Petersen, sérfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, telur rétt að líta á kanínuna sem villtan stofn í fánu Íslands og bendir á að sögu hennar á Íslandi megi rekja allt aftur á 19. öld. Stofninn hafi náð sér á strik og dáið út í mörg skipti frá þeim tíma, en núverandi stofn sé tilkominn vegna sleppinga fólks á gæludýrum sínum sem verði að teljast ámælisvert.

Spurður um stofnstærð segir Ævar erfitt að fullyrða nokkuð þar um. „Ég held að rétt sé að segja að stofnstærðin sé mörg hundruð eða fá þúsund dýr," segir Ævar.

Í maí 2010 sótti umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur til umhverfisráðuneytisins um undanþágu frá lögum til að fækka kanínum í borginni vegna tjóns sem þær yllu og þá helst á gróðri. Undanþága var veitt til veiða árið 2010 og jafnframt farið fram á að útbreiðsla kanína innan borgarlandsins yrði könnuð frekar, umfang vandamála af þeirra völdum metið og að gerðar yrðu tillögur að því hvernig tekið yrði á málum til frambúðar. Niðurstaðan liggur fyrir en verkfræðistofan Verkís annaðist úttektina.

Óverulegur fjöldi dýra fannst á átta talningarreitum í borgarlandinu þá daga sem talið var, en rannsóknin var gerð í mars 2012, eða á þeim tíma sem stofninn er í lágmarki. Langmest var af dýrinu í Elliðaárdal við Mjódd (85%) þar sem fólk hefur fóðrað kanínurnar yfir veturinn.

Í skýrslunni segir jafnframt að í svari umhverfisráðuneytisins frá 8. júní 2010 við erindi borgarinnar komi fram að Náttúrufræðistofnun Íslands hafi lýst yfir að útrýma bæri kanínum úr íslenskri náttúru og að Umhverfisstofnun hafi tekið undir það sjónarmið.- shá



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×