Kenny Dalglish hættur hjá Liverpool Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. maí 2012 15:25
Kenny Dalglish er hættur störfum sem knattspyrnustjóri Liverpool. Þetta kemur fram í enskum fjölmiðlum í dag en hefur ekki verið staðfest af félaginu sjálfu. Dalglish flaug til Boston fyrr í vikunni til viðræðna við John Henry, eiganda Fenway Sports Group sem keypti Liverpool haustið 2010. Dalglish tók við í janúar 2011 en frammistaða liðsins þótti valda vonbrigðum á nýliðnu tímabili. Liverpool endaði í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 52 stig - 37 stigum á eftir toppliðunum Manchester City og Manchester United. Liðið varð að vísu enskur deildabikarmeistari og komst í úrslit ensku bikarkeppninnar, þar sem Dalglish og lærisveinar hans töpuðu fyrir Chelsea. Forráðamenn Liverpool hafa ekki verið hræddir við að taka stórar ákvarðanir að undanförnu en fyrir stuttu var Frakkinn Damien Comolli rekinn úr starfi yfirmanns knattspyrnumála. Dalglish er goðsögn í augum stuðningsmanna Liverpool. Hann kom til liðsins sem leikmaður árið 1977 og tók við sem knattspyrnustjóri árið 1985 og var í því starfi til 1991. Hann vann fjölda titla með liðinu, bæði sem leikmaður og knattspyrnustjóri. Liverpool varð síðast Englandsmeistari árið 1990 en þá lék liðið undir stjórn Dalglish.Uppfært 15.55: Liverpool greindi frá því á Twitter-síðu sinni að félagið muni senda frá sér tilkynningu á heimasíðu sinni og LFC TV klukkan 16.00.
Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Fótbolti Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Sjá meira